Sterkur kjarni Kormáks/Hvatar styrkist enn

Mynd tekin af Facebook-síðu Aðdáenda Kormáks/Hvatar
Mynd tekin af Facebook-síðu Aðdáenda Kormáks/Hvatar
Á Facebook-síðu Kormáks/Hvatar segir að varnar- og miðjumaðurinn Ernir Freyr Guðnason hafi fengið félagaskipti yfir í Kormák/Hvöt.
 
Ernir er uppalinn hjá Leikni í Reykjavík og lék með þeim 31 leik í bæði Inkassó-deildinni og bikarleikjum. Ernir hefur auk þess leikið 83 leiki með aukaliði Leiknis, KB, meðal annars gegn Kormáki/Hvöt fyrir nokkrum árum. Þá spilaði hann fjóra leiki með KFG í 2. deildinni fyrir nokkrum árum. Aðdáendur Kormáks/Hvatar eru gríðarlega glöð með þessa viðbót en Ernir flytur búferlum á Hvammstanga á vormánuðum. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir