Tindastóll mætir Álftanesi í VÍS-bikarnum

Dregið var í 4-liða úrslitum í VÍS-bikarnum sl. mánudag en í pottinum voru Tindastólsmenn ásamt Álftanesi, Keflavík og Stjörnunni.

Leikirnir fara fram í Laugardalshöllinni þann 19. mars og er fyrri viðureignin á milli Álftaness og Tindastól kl. 17:15. Leikur Keflavíkur og Stjörnunar fer svo fram kl. 20:00 sama dag. Sigurvegararnir spila svo um VÍS-bikarinn laugardaginn 24. mars kl. 16:00 í Laugardalshöllinni.

Nú er bara að krossleggja fingur og vona það besta.

ÁFRAM TINDASTÓLL!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir