Nemendur Fornverkaskólans létu hendur standa fram úr ermum

Nemendur og kennarar Fornverkaskólans glaðbeittir á Syðstu-Grund. MYNDIR: FORNVERKASKÓLINN
Nemendur og kennarar Fornverkaskólans glaðbeittir á Syðstu-Grund. MYNDIR: FORNVERKASKÓLINN

Á Fésbókarsíðu Fornverkaskólans var í síðustu viku sagt frá því að mikið hafi verið um dýrðir hjá skólanum í september. Tvö námskeið voru haldin í torfhleðslu, annað á Tyrfingsstöðum á Kjálka og hitt á Syðstu-Grund í Blönduhlíð.

Gefum ritara Fornverkaskólans orðið: „Fyrra námskeiðið var haldið 1.-3. september á Tyrfingsstöðum og voru þátttakendur m.a. frá Minjastofnun, Húsverndarstofu og Byggðasafni Skagfirðinga. Á námskeiðinu var kennd torfrista og -stunga, kannaðar voru ýmsar hleðslugerðir og unnið að viðgerðum í bæjargöngum og þaki gamla bæjarins. Í bæjargöngum var oft þröngt á þingi, en allt gekk þetta með miklum sóma. Eins og áður sá Helgi Sigurðsson hjá Fornverki um kennslu á námskeiðinu og Ylfa Leifsdóttir, starfsmaður Byggðasafns Skagfirðinga hélt utan um veitingar og skipulag á meðan námskeiði stóð. Að vanda voru Stína og Siggi, ábúendur á Tyrfingsstöðum stoðir okkar og styttur á meðan námskeiði stóð, Stína stóð fyrir útskriftarveislu í lok námskeiðs og sendum við þeim góðar þakkir fyrir aðstoðina og samveruna.

Síðara torfhleðslunámskeiðið var haldið á Syðstu-Grund dagana 5.-7. september og voru þátttakendur m.a. frá Minjastofnun og Þjóðminjasafni en stærsti hluti þátttakenda voru nemendur og kennarar frá smíðadeild NTNU háskólanum í Þrándheimi í Noregi en námið snýst um kynningu og sérhæfingu í hefðbundnu byggingarhandverki. Á Syðstu-Grund voru hreinsaðir burt gamlir veggir útihúsa sem standa sunnan við bæinn, þátttakendur spreyttu sig á torfristu og -stungu, fengu sýnikennslu í mismunandi hleðslutegundum og byggðu loks upp alla veggi hússins með klömbruhnausum, streng- og grjóthleðslu.

Að vanda sá Helgi Sigurðsson frá Fornverki um kennslu á námskeiðinu og um skipulag og umsjón sáu Ylfa Leifsdóttir og Inga Katrín D. Magnúsdóttir frá Byggðasafni Skagfirðinga.“

Í lok færslunnar er síðan ábúendum og fjölskyldunni á Syðstu-Grund þakkaðar góðar undirtektir, stuðningur og aðstoð meðan á námskeiðinu stóð. „Kolbrún María Sæmundsdóttir og fjölskylda slógu til útskriftarveislu í lok námskeiðs og sendum við góðar kveðjur og þakkir fyrir okkur!“ segir í lokin.

Feykir tekur sér það bessaleyfi að birta nokkrar prýðismyndir sem fylgja umfjölluninni á síðu Fornverkaskólans. Þá sem þyrstir í enn fleiri myndir geta smellt hér >

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir