Fundartíminn færður fram til 18 í dag

Flúðabakki á Blönduósi. MYND: HÚNABYGGÐ.IS
Flúðabakki á Blönduósi. MYND: HÚNABYGGÐ.IS

Í dag, fimmtudaginn 18. janúar klukkan 18:00, verður haldinn opinn fundur í Félagsheimilinu á Blönduósi þar sem forsvarsfólk Flúðabakkaverkefnisins mun koma í heimsókn og kynna fyrirhugað verkefni. Á dögunum skrifaði Húnabyggð undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu átta íbúða við Flúðabakka.

Fimm íbúðir eru fyrsta áfanganum sem áætlað er að hefjist sem fyrst. Íbúðirnar eru hugsaðar fyrir fólk sem er 60 ára og eldri.

Sigurður Ágústsson, Hermann Arason og Helga Vilmundardóttir eru í forsvari fyrirtækisins sem sér um verkefnið og munu útskýra hvernig það er hugsað, hvernig húsin eru hönnuð og svara fyrirspurnum.

Fólk er hvatt til að mæta til að kynnast betur þessu spennandi verkefni og spyrja þau nánar út í smáatriði og leyfa þeim að heyra hvað ykkur finnst og hvaða hugmyndir þið hafið.

Athugið að áður auglýstum fundartíma kl. 20 hefur verið breytt – fundurinn hefur verið færður fram um tvo tíma og hefst því kl. 18:00.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir