Húnahornið stendur fyrir vali á Manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu

Bryndís Bragadottir var valin Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu 2022. Hér er hún ásamt Auðunni Sigurðssyni frá Húnahorninu sem afhenti henni viðurkenninguna. MYND: GRÍMUR LÁRUSSON
Bryndís Bragadottir var valin Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu 2022. Hér er hún ásamt Auðunni Sigurðssyni frá Húnahorninu sem afhenti henni viðurkenninguna. MYND: GRÍMUR LÁRUSSON

Líkt og undanfarin 18 ár býður Húnahornið lesendum sínum að velja mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu. Er biðlað til lesenda að senda inn tilnefningu í gegnum þar til gerðan rafrænan atkvæðaseðil. Hver og einn getur sent inn eina tilnefningu og er jafnframt óskað eftir ástæðu tilnefningarinnar. Fram kemur í frétt á Húnahorninu að Maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu geti verið einstaklingur eða hópur manna.

Allir lesendur Húnahornsins eru hvattir til að taka þátt í valinu - Smelltu hér.

Lesendur Húnahornsins völdu Bryndísi Bragadóttur sem mann ársins á svæðinu árið 2022 en Bryndís er hárgreiðslukona á Blönduósi og hefur hún klippt og snyrt hár Blönduósinga og nærsveitunga í tæp 40 ár en hún opnaði hárgreiðslustofu á Blönduósi árið 1987.

Þetta er í 19. sinn sem Húnahornið stendur fyrir vali á manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu. en valið stendur til miðnættis 25. janúar næstkomandi og verða úrslit kynnt degi síðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir