Þorskur með pistasíusalsa, sætkartöflumús og sojasmjörsósu

Dagný og Hjörtur. Mynd aðsend.
Dagný og Hjörtur. Mynd aðsend.

Matgæðingur vikunnar í tbl. 7 á þessu ári var Dagný Huld Gunnarsdóttir í Iðutúninu á Króknum. Dagný er gift Hirti Elefssen og eiga þau saman fjögur börn. Dagný vinnur á leikskólanum Ársölum og Hjörtur á Vélaverkstæði KS. „Takk kærlega fyrir Sigrún að skora á mig. Þú hefðir nú heldur átt að skora á hann Hjört þar sem hann er snillingur í eldhúsinu. En þessar uppskriftir eru í miklu uppáhaldi hjá okkur, njótið.“


Þorskur með pistasíusalsa

    600 g þorskhnakkar eða þorskflök
    salt og pipar
    3-4 msk. pistasíuhnetur, saxaðar (má líka nota furuhnetur)
    3 msk. sítrónusafi og rifið hýði af 1/2 sítrónu
    1 msk. olífuolía
    1 dl fersk steinselja, söxuð
    1/4 – 1/2 rautt chili, fræhreinsað og fínsaxað

Aðferð: Ofninn hitaður í 220°C. Þorskflökin skorin í bita og þeim raðað í smurt eldfast form. Kryddað með salti og pipar. Því næst er blandað saman í skál: pistasíuhnetum, sítrónusafa, sítrónuhýði, steinselju, chili og ólífuolíu. Blöndunni er dreift yfir fiskinn. Bakað í miðjum ofni í u.þ.b. 12-15 mínútur eða þar til
fiskurinn er fulleldaður. Gætið þess að ofelda hann ekki.

Sætkartöflumús:
    600 g sætar kartöflur
    1-2 kartöflur
    1/2 rautt chili, fræhreinsað
    safi úr 1/2 límónu (lime)
    1 msk. smjör
    salt og pipar

Aðferð: Kartöflur og sætar kartöflur skrældar og skornar í svipað stóra bita. Þær eru svo settar í pott og vatn rétt látið fljóta yfir. Chili skorið í tvennt langsum, fræin hreinsuð úr og því svo bætt út í pottinn. Til að fá bragðsterkari kartöflumús er hægt að saxa chili smátt. Límónusafa bætt út í pottinn. Suðan látin koma upp og soðið í 15-20 mínútur eða þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar. Vatninu helt af og chili (ef það er í heilu) fjarlægt. Kartöflurnar stappaðar fínt með smjöri og bragðbættar með salti, pipar og jafnvel meiri límónusafa. Til að skerpa á hitanum á sætkartöflumúsinni er hún sett í pott og hituð upp við meðalhita, hrært í á meðan.

Sojasmjörsósa:
    3 msk. smjör
    1 skarlottulaukur (hægt að nota 1/2 rauðlauk), saxaður fínt
    1 hvítlauksrif, saxað fínt
    1 tsk. rautt chili, saxað fínt
    2-3 msk. sojasósa
    1 msk. steinselja, söxuð smátt

Aðferð: Smjör brætt í potti og látið krauma við fremur vægan hita í u.þ.b. 15 mínútur þannig að smjörið verði brúnt. Froðan veidd af smjörinu. Lauk, hvítlauk, sojasósu, chili og steinselju blandað saman í skál og blandað út í smjörið rétt áður en sósan er borin fram.

Verði ykkur að góðu!
Þau skoruðu á vini sína Margréti Helgu og Helga Frey með von um að þau fari nú að bjóða sér í mat fljótlega:) 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir