LEIKDAGUR!!

Adomas Drungilas. MYND DAVÍÐ MÁR SIGURÐSSON
Adomas Drungilas. MYND DAVÍÐ MÁR SIGURÐSSON
Á Facebooksíðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls er biðlað til ykkar kæra stuðningsfólk að allir eigi að vera búnir að finna til kúrekahattinn og pressa Tindastólsbolinn því að í kvöld er leikdagur.
 
Ykkur er líka bent á að ef þið hafið ekki fundið Tindastólsbolinn eða hann er orðinn eitthvað þreyttur þá er að sjálfsögðu hægt að kaupa nýjan bol í Tindastólsbúðinni.
 
Tindastóll tekur á móti Þór Þorlákshöfn í kvöld fimmtudaginn 14. mars og hefst leikurinn á hefðbundnum tíma kl. 19:15, hamborgarasalan hefst klukkutíma áður 18:15 svo það er allt samkvæmt venju. 
Nú er að mæta í Síkið og láta í sér heyra.  ÁFRAM TINDASTÓLL.
 
 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir