USAH leitar eftir tilnefningum um íþróttamann ársins 2017

Ungmennasamband Austur-Húnvetninga útnefnir árlega íþróttamann ársins. Sambandið leitar nú eftir því hjá íbúum sýslunnar að þeir tilnefnini íþróttafólk sem náð hefur góðum árangri í sinni keppnisgrein á árinu 2017. Rétt til tilnefningar eiga þeir sem eru 16 ára á árinu og eldri og keppa á yfirstandandi eða nýloknu keppnistímabili fyrir hönd USAH eða félaga innan USAH.

Tilnefningar eiga að berast til stjórnar USAH fyrir 20. desember næstkomandi og skal þeim skilað ásamt yfirliti yfir árangur viðkomandi einstaklings á netfangið usah540@simnet.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir