Aukin áhersla í samgöngu- og byggðamálum

Nú stendur yfir umræða um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Þar er gert ráð fyrir sérstöku átaki í samgönguframkvæmdum á árunum 2019-2021, samtals um 16,5 milljarða króna. Áhersla verður á greiðar og öruggar samgöngur allt árið í þeim verkefnum sem unnin verða.  Strax á fyrsta ári áætlunarinnar er aukningin til málefnasviðsins 4,3 milljarðar króna frá fjárlögum 2018. Ætlunin er að  klára Dýrafjarðargöng og tvöfalda Kjalarnesveg. Unnið er að samgönguáætlun sem á að leggja fyrir í haust.

Þótt vel sé í lagt þá bíða mörg verkefni enn. Nauðsynlegt er að setja brýn verkefni í forgang, eins og  uppbyggingu Vatnsnesvegs, Hegranesveg í Skagafirði og Skagastrandarveg. Ef spár ganga eftir mun ferðamönnum halda áfram að fjölga og umferð aukast lítillega. Það kallar á uppbygginu og viðhald vega og við verðum að vera viðbúin því. Framlög til samgöngumála eru þáttur í forvörnum. Tryggja verður öryggi vegfaranda eins og best verður á kosið.

Metnaðarfull byggðaáætlun

Nú á vorþingi verður lögð fram byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024. Við gerð þessarar áætlunar var haft víðtækt samráð um allt land. Höfð var hliðsjón af áherslum ríkisstjórnarinnar um jöfn lífskjör og gott aðgengi að þjónustu um allt land. Vinnan við nýja áætlun hefur falið í sér mun víðtækara samráð en áður hefur verið á ýmsum samráðsvettvöngum, allra landshlutasamtaka sveitarfélaga, auk ríkisins og Byggðastofnunar. Ríkisstjórnin leggur ríka áherslu á byggðamál en markmiðið er að jafna aðgengi að þjónustu og stuðla að sjálfbærri þróun byggða um allt land. Til þess eru margar leiðir. Bættar samgöngur, öflug grunnþjónusta, heilbrigðismál og stuðningur við atvinnugreinar sem bera uppi sjálfbært samfélag til framtíðar. Þarna getur hið opinberra verið leiðandi með flutningi starfa og opinberra verkefna út á land. Þar má ekki sofna á verðinum og stjórnvöld geta bætt sig í þessum efnum.

 

Halla Signý Kristjánsdóttir,
7. þingmaður NV kjördæmis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir