Aðalfundur Samfylkingarinnar í NV-kjördæmi
Kjördæmisráð Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi boðar til aðalfundar sunnudaginn 6. maí 2018 kl. 12-16 í Landnámssetrinu, Borgarnesi. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Guðjón Brjánsson, þingmaður kjördæmisins, ávarpar fundinn og tekur þátt í umræðum.
Þeir félagsmenn sem hafa hug á að bjóða sig fram eða tilnefna í stjórn, eða til annarra embætta sem kosið verður um hafi samband við undirritaðan fyrir 3. maí nk. Tillögur að lagabreytingum þurfa að berast undirrituðum fyrir 25. apríl n.k. í netfangið olafuringigudmundsson@hotmail.com.
Stjórn kjördæmisráðs hvetur alla félagsmenn til að mæta á aðalfundinn og taka þátt í undirbúningi og umræðum vegna komandi sveitarstjórnarkosninga.
Fyrir hönd stjórnar kjördæmisráðs,
Ólafur Ingi Guðmundsson, formaður
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.