Dreifing á Feyki og Sjónhorni tefst um sólarhring

Það er ekki bara vorið sem lætur bíða eftir sér. Að öllu jöfnu hefðu Feykir og Sjónhorn verið á leiðinni í hús þennan ágæta miðvikudagsmorgunn en vegna óviðráðanlegra aðstæðna þá tefst dreifing um sólarhring. Beðist er velvirðingar á þessu og vonandi endurtekur þetta sig ekki – enda afar óheppilegt í alla staði.

Þeir óþreyjufyllstu geta skoðað Sjónhornið hér og sömuleiðis geta rafrænir áskrifendur að Feyki lesið blaðið nú upp úr klukkan níu.

Þá krossum við bara fingur og vonum að vorið fylgi með Sjónhorni og Feyki í fyrramálið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir