Frí sætaferð í Keflavík

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur ákveðið að bjóða til sætaferðar til Keflavíkur í dag en þar mun Tindastóll heyja mikilvægan leik gegn heimamönnum í úrslitakeppni Dominosdeildar í körfuboltanum. Farið verður frá Íþróttahúsinu á Sauðárkróki kl. 12:30. Það er upp á líf eða dauða að tefla hjá Stólunum því þeir verða að vinna þá tvo leiki sem eftir eru við Keflavík til að komast áfram í keppninni. Þeir sýndu það svo sannarlega í síðasta leik að þeir eru til alls líklegir.

Skráningin stendur til kl. 11.00 í dag á netfangið barmahlid5@gmail.com. „Núna eru engar afsakanir teknar gildar enda algjör skyldumæting í sláturhúsið og styðja strákana alla leið,“ segir á fésbókarsíðu körfuknattleiksdeildar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir