Fyrir fólkið í firðinum

Það er gott að búa í Skagafirði, fjölbreytt mannlíf, einstæð náttúra og sagan við hvert fótmál. Við eigum að gera samfélagið okkar þannig úr garði að hér sé umfram allt gott að lifa í hversdagsleikanum. Það gerum við með því að leggja áherslu á að grunnþjónustan sé góð og verðlagi á henni stillt í hóf. Margt er nú þegar gott, en ennþá má ýmislegt bæta. Við njótum nú þess uppgangs sem er í samfélaginu með mörgum hætti, m.a í auknum tekjum sveitarfélagsins. Við eigum að nýta styrk þess til að byggja upp blómlega byggð um allt héraðið með góðri þjónustu og fjölskylduvænu samfélagi. Til þess þurfa leikskólagjöld að lækka, þau eru orðin með þeim hæstu á landinu, eftir að hafa verið lægst við upphaf kjörtímabilsins. Sömuleiðis þurfa foreldrar að greiða of mikið fyrir skólamáltíðir. Leysa þarf dagvistunarmál í öllu héraðinu, þau eru í uppnámi. Húsnæðisvandi leikskólanna er ekki nýr af nálinni. Það er einkennilegt að það sé ekki búið að leysa þessi mál þegar á sama tíma er hægt að keyra sum önnur mál í framkvæmdir á miklum hraða.

Við getum verið stolt af grunnskólunum okkar sem eru sérlega vel mannaðir og standa í fremstu röð hvað breytta kennsluhætti varðar. En mannauðurinn innan skólanna, bæði starfsfólk og nemendur, þarf betri vinnuaðstöðu, sem þýðir að endurbætur á skólahúsnæði á öllum stöðum. Að auki þarf að byggja upp íþróttaaðstöðu utan póstnúmers 550. 

Að geta elst í sinni heimabyggð og fá unga fólkið aftur heim
Þjónustu við eldra fólk þarf að bæta því víða til sveita er lítil sem engin þjónusta. Á sömu stöðum er þörf á að fjölga störfum. Það getur því farið vel saman að matar-, og heimaþjónustu við eldra fólk sé sinnt af heimamönnum á hverjum stað.

Við ættum að reyna allt til að fólk geti elst í sinni heimabyggð, sé það ósk viðkomandi. Þess vegna er mikilvægt að eldra fólk eigi kost á sjúkraþjálfun heima hjá sér og bættri aðhlynningu almennt.

Við viljum líka að ungt fólk geti komið aftur heim. Til þess þarf að skapa fleiri tækifæri til fjölbreyttra starfa og búsetu með auknu framboði á húsnæði og auðvelda uppbyggingu þess. Fjölga þarf lóðum og sveitarfélagið þarf að auglýsa störf. Það þarf að efla þéttbýliskjarna um allt héraðið með sambærilegri og góðri þjónustu eins og við verður komið.

Við viljum verða hluti af heilsueflandi samfélagi, þar sem áhersla er lögð á gott mataræði á leik- og grunnskólum og fleiri vinnustöðum, ásamt hreyfingu, með fleiri göngu- og hjólastígum, leikvöllum og útivistarsvæðum. Það fellur vel að þessari heilsueflandi hugsun að stefna á styttingu vinnuvikunnar á vinnustöðum sveitarfélagsins. Tilvalið væri að byrja á leikskólum Skagafjarðar.

Við höfum talað fyrir hækkun hvatapeninga strax upp í 30 þúsund og um leið tryggja að þessi hækkun skili sér til heimilanna, en fari ekki beint í hækkun gjalda á þeirri afþreyingu sem hvatapeningar greiða niður. Áfram þarf að tryggja öflugt félags-, tómstunda-, tónlistar- og íþróttastarf um allan fjörðinn, það er aldrei ofsagt að þetta er besta forvörnin fyrir börnin okkar. Við viljum ekki eingöngu hafa orðið 'fjölskylduvænt samfélag’ á blaði, heldur í raunverulegum forgangi.

Skagafjörður er víðfermur með fjölbreyttu atvinnulífi. Þær atvinnugreinar þarf allar að styrkja, ekki síst landbúnað og smábátaútgerð en þar hefur verið á brattann að sækja. Hægt er að greiða leið bænda til að vinna sínar afurðir og selja beint frá býli og standa með þeim í sinni hagsmunabaráttu og hvað smábátaútgerð varðar þarf að sækja sértækan byggðakvóta. Einnig þarf að tryggja friðun Skagafjarðar fyrir dragnótaveiðum.

Við viljum jafnræði til atvinnu uppbyggingar, en það kom einmitt fram í íbúakönnun Vífils Karlsonar nýverið, að hér er óánægja með möguleika á að koma upp eigin atvinnurekstri. Því þarf að breyta. Ekki einungis þarf að styðja við nýsköpun og frumkvöðlastarf heldur þarf að tryggja að samkeppnisskilyrði fyrirtækja séu jöfn.

Opin stjórnsýsla og íbúalýðræði
Samfara þessu öllu viljum við opna stjórnsýsluna. Hafa hana gegnsærri. Opin stjórnsýsla örvar pólitíska og samfélagslega þátttöku íbúa, styrkir lýðræðið.  Verkferlar verða að vera skýrir og aðgengilegir. Íbúafundir, þarfagreining og undirbúnings vinna ásamt staðbundnu lýðræði. Það er ekki bara mikilvægasta undirstaða framkvæmda og breytinga heldur grundvöllur þess að framkvæmdin heppnist vel og verði árangursrík. Íbúar á hverjum stað eru sérfræðingar í nærumhverfi sínu, samráð við þá stuðlar að vandaðri ákvörðunartöku byggða á réttum þekkingargrunni. Allir eiga að hafa val um virka þátttöku í ákvörðunum sem varða okkur öll.

Með réttri forgangsröðun er hægt að framkvæma það sem hér er talið upp.

Með opinni stjórnsýslu, meira gegnsæi og staðbundnu íbúalýðræði verður forgangsröðun önnur og betri en hún er í dag. Aðhald verður meira og þannig verða til peningar í þau verkefni sem skipta heimafólk máli. Að minnsta kosti ef meirihluta fráfarandi sveitarstjórnar tekst ekki að leggja fjötra leyndra langtíma fjárhagsskuldbindinga á samfélagið okkar vegna stuðnings við eitt einkafyrirtæki, sem binda hendur næstu sveitarstjórna.

Gerum samfélagið okkar þannig að hversdagsleiki fólks sé ánægjulegur. Með góðri grunnþjónustu, með því að stilla gjöldum í hóf, hugsa vel um eldra fólk, með raunverulega fjölskylduvænni stefnu, þá verður Skagafjörður enn eftirsóknarverðari, bæði fyrir gesti og heimamenn, en ekki síst sem framtíðarheimili unga fólksins okkar.

Við biðjum um ykkar stuðning til að fylgja þessum hugmyndum eftir í verki.

 

                                                           Framboðslisti VÓ - Vinstri Græn og Óháð Skagafirði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir