Fréttir

Hola skagfirskrar menningar

Blaðamaður brá sér upp á Nafir til að líta yfir framkvæmdasvæði Menningarhússins. Ekki verður betur séð en að jarðvegsvinnu sé lokið allavega í bili.
Meira

Kolbeinsdalsvegur hlaut hæsta styrkinn

Á fundi landbúnaðar- og innviðanefndar Skagafjarðar í gær voru teknar fyrir umsóknir í Styrkvegasjóð en fyrir lá styrkur frá Vegagerðinni upp á þrjár milljónir króna sem er um 64% af því sem sótt var um. Samstaða var í nefndinni um hvernig útdeila skildi styrknum en hann skiptist niður á fimm verkefni og hlaut Kolbeinsdalsvegur hæsta styrkinn eða 1.380.000 kr.
Meira

Umsóknarfrestur framlengdur til 31. ágúst

Seinni partinn í júlí auglýsti Húnaþing vestra að sveitarfélagið hefði pláss fyrir fjóra öfluga starfsmenn og þá væntanlega til viðbótar við þá sem fyrir eru. Nú er vakin athygli á því að umsóknarfrestur um þessi störf hjá hefur verið framlengdur til og með 31. ágúst nk.
Meira

„Maður þarf ekki að vera 2 metrar til þess að stanga hann inn!“

Tindastólsmenn héldu á Ólafsfj0rð í gær þar sem lið Knattspyrnufélags Fjallabyggðar beið þeirra. Lið KF fór illa með Stólana á Króknum fyrr í sumar og vann þó óvæntan en sanngjarnan sigur og Stólarnir þurftu að svara fyrir sig í gær og að sjálfsögðu að halda í við liðin í toppbaráttunni. Það fór svo eftir talsverða dramatík á lokamínútunum að liðin deildu stigunum og lokatölur 1-1.
Meira

Moses Hightower verða í Krúttinu á sunnudaginn

Reykvíska gæðahljómsveitin Moses Hightower startar tónleikaferð um landið annað kvöld en þá verða tónleikar í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Frá Ísafirði heldur bandið í Eyjafjörðinn og spilar í LYST á laugardegi og á heimleiðinni rigga þeir upp tónleikum í Krúttinu á Blönduósi og hefjast þeir klukkan 16 á sunnudeginum 23. ágúst.
Meira

Veiðihús rýkur upp í Vatnsdalnum

Verið er að byggja nýtt veiðihús í Steinkoti við Flóðið í Vatnsdal á silungsveiðisvæðinu. Fyrir er á staðnum eldra veiðihús, talsvert minna. Nýja húsið er rúmlega 600 fermetrar. Nýja húsið er fimmfalt stærra en það gamla og á það að vera tilbúið fyrir næsta vor.
Meira

Haukar sóttu öll stigin í Húnabyggð

Topplið Hauka úr Hafnarfirði mætti í Húnabyggð í gærkvöldi og atti kappi við lið Kormáks/Hvatar á Blönduósvelli. Það hefur verið hálfgert skrölt á heimamönnum upp á síðkastið og það mátti því reikna með erfiðum leik gegn langefsta liði deildarinnar. Það fór svo að Haukarnir höfðu stigin þrjú með sér heim eftir 1-2 sigur.
Meira

Slagarasveitin á bæjarhátíðinni Í túninu heima í Mosfellsbæ

Slagarasveitin húnvetnska kemur fram á bæjarhátíðinni Í túninu heima, sem haldin verður í Mosfellsbæ dagana 27.–30. ágúst næstkomandi. Tónleikar sveitarinnar fara fram laugardaginn 29. ágúst klukkan 17:00 og standa yfir í um eina klukkustund. Viðburðurinn verður haldinn að Vogatungu 13 í Mosfellsbæ.
Meira

Afmælishátíð Landsbankans og TM 20. ágúst

Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.
Meira

Kvennalið Tindastóls endanlega fallið í 2. deild

Kvennalið Tindastóls mætti liði Hauka í Lengjudeildinni í gærkvöldi og var spilað á Króknum. Líkt og í öllum öðrum leikjum sumarsins – nema einum – urðu stelpurnar okkar að sætta sig við tap. Úrslitin í gær þýða það að Stólastúlkur eru endanlega fallnar í 2. deild og því klárlega kominn tími á uppbyggingu. Lokatölur gærkvöldsins voru 0-3 fyrir Hauka.
Meira