Lögð fram tillaga um verndarsvæði í byggð á Blönduósi

Gamli bærinn á Blönduósi. Mynd FE
Gamli bærinn á Blönduósi. Mynd FE

Á fundi sveitarstjórnar Blönduósbæjar þann 13. febrúar sl. var samþykkt að leggja fram tillögu til mennta- og menningarmálaráðherra um verndarsvæði í byggð innan þéttbýlisins á Blönduósi. Tillagan fjallar um verndargildi byggðar sem spannar rúm 140 ár og stendur á 17,5 hektara svæði innan við ós Blöndu. Er hér annars vegar um að ræða gamla bæjarkjarnann á Blönduósi og hins vegar aðliggjandi svæði sjálfsþurftarbyggðar á árbakkanum og í Klifamýri.

Útmörk svæðisins miðast við fjörumál og fylgja þau síðan sandinum við árósinn og árbakkanum að norðanverðu austur að vestari lóðarmörkum fjölbýlishússins við Hnjúkabyggð 27. Þar sveigja mörkin í suðurátt að götunni Hnjúkabyggð og liggja þau síðan meðfram henni uns kemur að mótum Þingbrautar, sem þau fylgja síðan í suður- og vesturátt að rótum malarhjallans, þ.e. Miðholts- og Neðribrekku, en þau marka útmörk verndarsvæðisins að sunnanverðu allt til sjávar, að því er segir á vef Blönduósbæjar.Yfirlitsuppdráttur. Blönduós 2017. Skjáskot af uppdrætti með greinargerð með tillögunni.

Þar segir einnig: „Sögu svæðisins má í grófum dráttum skipta í tvö ámóta löng tímabil, þ.e. annars vegar tíma uppbyggingar á árabilinu 1876-1950 og hins vegar kyrrstöðu- og hnignunarskeið, sem þá tók við og enn varir. Þrátt fyrir stöðnun og áföll á liðnum áratugum hefur svæðið haldið sínum sjarma. Andrúmsloft fyrri tíma grúfir yfir og skapar afar sérstaka og eftirsóknarverða stemmningu á svæðinu. Tilfinningin um sjálfbæra bæjarkjarnann sem iðaði af mannlífi og naut stuðnings af sveitinni innan við og sjónum fyrir utan. Áningarstaðarins þar sem ferðafólk gat hvílt lúin bein. Hér eru einstök verðmæti sem mikilvægt er að halda vel utan um og byggja upp af fagmennsku og virðingu. Með tillögu um verndarsvæði í byggð verður saga, menning og varðveislugildi svæðisins fest í sessi.“

Til grundvallar tillögunni er Aðalskipulag Blönduósbæjar 2010 - 2030 og fyrri tillögur að aðalskipulagi, Húsakönnun á Blönduósi 2015, Fornleifaskráning Blönduósbæjar frá 2007, ítarleg samantekt um byggðina innan verndarsvæðisins í greinargerð tillögunnar og greining á núverandi svipmóti svæðisins, sem einnig birtist í greinargerð tillögunnar.

Tillagan, ásamt greinargerð og uppdráttum, mun liggja frammi á skrifstofu Blönduósbæjar, Hnjúkabyggð 33, frá 21. febrúar til og með 4. apríl næstkomandi.

Hægt er að gera athugasemdir við tillöguna fram að þeim tíma. Þær skal senda skriflega til skipulags- og byggingarfullrtúa eða á netfangið byggingafulltrui@blonduos.is

Tillöguna ásamt greinargerð og uppdrætti má einnig nálgast hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir