Svínavatn 2018

Laugardaginn 3. mars getur hestaáhugafólk glaðst þar sem ísmót verður haldið á Svínavatni í A-Hún. Keppt verður í A- og B flokki gæðinga og opnum flokki í tölti.

Í tilkynningu frá undirbúningsnefnd segir að fyrirkomulag verði með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár og verða nánari upplýsingar birtar á Feyki.is, hestanetmiðlum og á heimasíðu mótsins  þegar nær dregur.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir