Gítarpartý á Sjávarborg

Í kvöld föstudaginn 29. desember er kvöldið til að skella sér í betri fötin og hita upp fyrir áramótin. Opið verður lengur á Sjávarborg á Hvammstanga og ætla Elvar Logi og Hrund að halda uppi stuðinu fram á nótt. Blaðamaður hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að þarna verði brjálað stuð. 

Ef þið hins vegar eruð á Skagaströnd eða í nágrenninu er ekki úr vegi að skella sér í Partýbingó með Fanneyju á Harbour í kvöld klukkan 21:00. Þar eru líka uppi loforð um að þetta verði eitt mesta stemmingskvöld ársins. Tónlistarbingó er eins og venjulegt bingó nema í staðinn fyrir að tölur séu lesnar reyna spilarar að þekkja lög sem eru spiluð.  

Svo ég segi bara góða skemmtun í kvöld. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir