Inga leggur stígvélin á hilluna

Ingibjörg Axels ásamt fulltrúum FISK Seafood. MYND: FISK.IA
Ingibjörg Axels ásamt fulltrúum FISK Seafood. MYND: FISK.IA

Ingibjörg Axelsdóttir starfsmaður landvinnslu FISK Seafood á Sauðárkróki hefur lagt stígvélin á hilluna eftir farsælan starfsferil hjá fyrirtækinu. Haldið var kaffisamsæti að þessu tilefni í kaffistofu landvinnslunnar og þar voru Ingu færðar þakkir fyrir vel unnin störf og óska samstarfsmenn og stjórnendur fyrirtækisins henni alls hins besta.

„Inga hóf fyrst störf hjá fyrirtækinu 1976 og vann hjá því með hléum. Um tíma vann hún hjá Loðskinn hf. en hefur starfað hjá landvinnslu FISK sleitulaust frá árinu 1999 við ýmis störf ... Inga segir að miklar breytingar hafi orðið í fiskvinnslu á hennar starfsferli og vinnustaðurinn sé allt annar en hann var þegar hún hóf fyrst störf. Nú segist hún njóta þess að ráða sínum tíma sjálf og iðkar t.d. sundleikfimi og jóga ásamt því að fara í gönguferðir,“ segir í frétt á vef FISK Seafood

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir