Vilt þú taka þátt í að efla íþróttastarf?

Snippuð mynd af heimasíðu umfí.
Snippuð mynd af heimasíðu umfí.

ÍSÍ og UMFÍ leitar að sextán hæfileikaríkum og metnaðarfullum einstaklingum með brennandi áhuga á íþróttastarfi á Íslandi til að taka þátt í að byggja upp öflugt starf íþróttahéraða á öllu landinu. Starfsmennirnir verða staðsettir á átta svæðastöðvum um allt land en tveir starfsmenn verða á hverri stöð.

Horft er til þess að starfsmennirnir sextán muni vinna saman sem einn þar sem styrkleikar og hæfileikar hvers og eins verða nýttir. Starfsfólk svæðastöðva tekur þátt í að skapa tækifæri og þróa árangursríkt íþróttaumhverfi fyrir börn - og ungmenni, fá tækifæri til að vinna að fjölbreyttum verkefnum sem miða að því að hámarka tækifæri barna og ungmenna til íþróttaiðkunar. Starfsemi svæðastöðva byggir á teymishugsun þar sem samvinna, fagmennska og framsækni í sterkri liðsheild er grundvallaratriði.

Markmiðið með svæðastöðvunum

  • Vinna með íþróttahéruðum að eflingu íþróttastarfs um allt land.
  • Vinna að innleiðingu á stefnu og markmiðum íþróttahreyfingarinnar.
  • Vinna að innleiðingu á stefnu og markmiðum stjórnvalda í íþróttamálum.
  • Bæta almennt umgjörð í kringum íþróttastarf.

Helstu verkefni svæðastöðva

  • Samstarf, samskipti og stuðningur við íþróttahéruð og aðildarfélög.
  • Samstarf og samskipti við opinbera aðila varðandi stuðning og þjónustu íþróttafélaga um allt land.
  • Vinnsla verkefna sem tengjast aukinni þátttöku barna í íþróttum og farsæld.
  • Verkefnisstjórnun og vinna að nýsköpunarverkefnum.
  • Móta skipulag og eftirfylgni tengt fræðslumálum íþróttahéraða.
  • Fræðsla og kynning til íþróttahéraða og aðildarfélaga í ýmsum málum.
  • Samræming málaflokka, stjórnarhátta, verkferla, öryggis- og viðbragðsáætlana.
  • Koma upp og viðhalda leiðbeiningum og viðmiðum fyrir stjórnun íþróttahéraða og stjórnendur íþróttafélaga.
  • Yfirlit og eftirfylgni með lögbundnum skyldum íþróttahéraða og aðildarfélaga.
  • Umsjón og þátttaka í samráði og á samræmingarfundum.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leitað er að hæfileikaríkum einstaklingum með fjölbreytta þekkingu til að gegna ofangreindum verkefnum.
  • Reynsla og þekking af starfi innan íþróttahreyfingarinnar er kostur.
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og samstarfi við sveitarfélög er kostur.
  • Styrkleiki og reynsla á eftirfarandi sviðum er kostur:
    • Verkefnastjórnun
    • Mótun ferla
    • Fræðsla og miðlun upplýsinga
    • Teymisvinna

Til viðbótar er mikilvægt að umsækjendur búi yfir frumkvæði, séu sjálfstæðir, geti unnið í teymi, miðlað upplýsingum munnlega og skriflega, unnið skipulega, haft góða samskiptahæfileika og getu til að ná árangri í mjög fjölbreyttu umhverfi.

Umsækjendur þurfa að sjálfsögðu að hafa hreint sakavottorð í samræmi við ákvæði í íþróttalögum.


Svæðastöðvarnar eru eftirfarandi og þjónusta eftirfarandi íþróttahéruð

Norðurland vestra:

  • Ungmennasamband Austur Húnvetninga (USAH)
  • Ungmennasamband Vestur Húnvetninga (USVH)
  • Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS).

Sækja um starfið á Norðurlandi vestra.

Vesturland:

  • Héraðssamband Snæfellsness og Hnappadalssýslu (HSH)
  • Íþróttabandalag Akraness (ÍA)
  • Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN)
  • Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB).

Sækja um starfið á Vesturlandi.

Vestfirðir:

  • Héraðssambandið Hrafna-Flóki (HHF)
  • Héraðssamband Bolungarvíkur (HSB)
  • Héraðssamband Strandamanna (HSS)
  • Héraðssamband Vestfirðinga (HSV)

Sækja um starfið á Vestfjörðum.

Norðurland eystra:

  • Héraðssamband Þingeyinga (HSÞ)
  • Íþróttabandalag Akureyrar (IBA)
  • Ungmenna- og íþróttasamband Fjallabyggðar (UIF)
  • Ungmennasamband Eyjafjarðar (UMSE)

Sækja um starfið á Norðurlandi eystra.

Austurland:

  • Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands (UIA)
  • Ungmennasambandið Úlfljót (USÚ)

Sækja um starfið á Austurlandi.

Suðurland:

  • Héraðssambandið Skarphéðinn (HSK)
  • Íþróttabandalag Vestmannaeyja (IBV)
  • Ungmennasamband Vestur Skaftafellssýslu (USVS)

Sækja um starfið á Suðurlandi.

Suðurnes:

  • Íþróttabandalag Reykjanesbæjar (ÍRB)
  • Íþróttabandalag Suðurnesja (ÍS)

Sækja um starfið á Suðurnesjum.

Höfuðborgarsvæðið:

  • Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH)
  • Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR)
  • Ungmennasamband Kjalarnesþings (UMSK)

Sækja um starfið á höfuðborgarsvæðinu.

Nánari upplýsingar veita:
Sverrir Briem - sverrir@hagvangur.is
Hanna Carla Jóhannsdóttir - hannacarla@isi.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir