Karlakórinn Söngbræður með tónleika á Hvammstanga
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
14.03.2024
kl. 08.55
siggag@nyprent.is
Karlakórinn Söngbræður heldur tónleika í félagsheimilinu á Hvammstanga laugardaginn 16. mars kl. 16:00. Stjórnandi kórsins er Viðar Guðmundsson og um píanóleik sér Kjartan Valdemarsson. Miðaverð er kr. 3000 og posi verður á staðnum.
Fleiri fréttir
-
Ólík nálgun á snjallfækkun
Um fjörtíu háskólanemar og kennarar frá sex erlendum háskólum, af tólf þjóðernum, heimsóttu Byggðastofnun í gær á vegum Háskólaseturs Vestfjarða sem er hluti af alþjóðlegu samstarfi og skipuleggur sumarskóla í samstarfslöndunum Svíþjóð, Lettlandi, Finnlandi, Eistlandi, Litháen auk Íslands.Meira -
Liðið þarf smá tíma til að slípast saman
„Leikurinn við Reyni var heilt yfir nokkuð vel spilaður. Sóknarlega náðum við að halda betur í boltann en við gerðum á móti Selfossi og við vorum að fá góðar opnanir hátt á vellinum en náðum ekki að nýta þær stöður nægilega vel,“ sagði Ingvi Rafn Ingvarsson, þjálfari Kormáks/Hvatar, þegar Feykir spurði hann út í leikinn gegn Reyni Sandgerði í 2. umferð 2. deildar en leikurinn fór fram á Dalvík um helgina. Leikurinn endaði með 1-3 sigri Sandgerðinga líkt og Feykir sagði frá.Meira -
Sigurbjörg ráðin yfirlæknir á HSN á Króknum
Sigurbjörg Ólafsdóttir, heimilislæknir, hefur verið ráðin yfirlæknir á HSN Sauðárkróki. Sigurbjörg lauk námi frá læknadeild Háskóla Íslands árið 2012 og hóf sérnám í heimilislækningum á HSN Sauðárkróki 2014. Hún hélt síðar til Svíþjóðar hvaðan hún lauk sérnámi árið 2020 og hefur síðan starfað þar á heilsugæslustöðvum sem heimilislæknir.Meira -
Krúttlegur hryllingur í Bifröst | Kristín Einars kíkti í leikhús
Væntingum var verulega stillt í hóf þegar undirrituð lagði leið sína í Bifröst á sunnudagskvöldið. Ekki var það á nokkurn hátt vantrú á hæfileika skagfirskra áhugaleikara eða leikhúsfólks í Firðinum sem réði því, heldur miklu frekar áhyggjur af því að ein af sterkustu leikhúsupplifunum æsku minnar trufluðu þessa upplifun sem í vændum var. Ég var nefnilega rétt að detta í tólf ára aldurinn þegar ég sá fyrstu uppsetningu verksins hér á landi í Gamla bíói. Þar voru Leifur Hauksson, Edda Heiðrún, Gísli Rúnar og Laddi meðal leikara og Björgvin Halldórsson léði plöntunni rödd sína. En ég var fljót að ýta þeim áhyggjum til hliðar og naut hverrar sekúndu í Bifröst. Þvílík fagmennska og flottur hópur sem þarna lét ljós sitt skína! Það er kannski klisjukennt að tala um að toppa sig, en það gerði Leikfélag Sauðárkróks svo sannarlega með þessari sýningu.Meira -
Gyrðir Elíasson hlaut Maístjörnuna fyrir ljóðabók ársins 2023
Ljóðabókaverðlaunin Maístjarnan voru afhent í Þjóðarbókhlöðunni í gær en það var Gyrðir Elíasson sem hlaut verðlaunin fyrir ljóðabók ársins 2023 Elíasson fyrir ljóðabókatvennuna Dulstirni & Meðan glerið sefur. Rithöfundasamband Íslands stendur að verðlaununum ásamt Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.Meira
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.