Veiði fer vel af stað í Miðfjarðará

Miðfjarðará. Mynd: Angling.is
Miðfjarðará. Mynd: Angling.is

Laxveiði er nú hafin í Miðfjarðará og  lofar byrjunin góðu. Fyrsta daginn, þann 15. júní, veiddust 44 laxar sem er með því besta sem veiðst hefur á opnunardegi í ánni. Morgunvaktin skilaði 23 löxum og 21 lax veiddist á síðdegisvaktinni. Flestir voru laxarnir, sem veiddust á öllum svæðum, í stærri kantinum, vænir tveggja ára laxar um 85-93 sentímetrar að lengd. Mest veiddist á hitch.

Miðfjarðará var aflahæst húnvetnsku laxveiðiánna síðastliðin tvö ár. Alls veiddust 4.338 laxar á tíu stangir úr ánni í fyrra og 6.028 laxar sumarið 2015 sem var veiðimet.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir