Arna Rún öldrunarlæknir stokkin á HSN vagninn

Arna Rún Óskarsdóttir öldrunarlæknir. MYND AF SÍÐU HSN
Arna Rún Óskarsdóttir öldrunarlæknir. MYND AF SÍÐU HSN

Heilbrigðisstofnun Norðurlands tilkynnir með ánægju að Arna Rún Óskarsdóttir, öldrunarlæknir, hafi verið ráðin til starfa hjá HSN. Arna Rún hefur mikla reynslu en hún hefur starfað um árabil sem öldrunarlæknir á Sjúkrahúsinu á Akureyri og verið forstöðulæknir endurhæfingar- og öldrunarlækninga.

Þá hefur Arna Rún verið formaður Færni- og heilsumatsnefndar heilbrigðisumdæmis Norðurlands til margra ára. Hún mun m.a. starfa með heimahjúkrun á Akureyri, koma að starfsemi hjúkrunardeilda HSN á Blönduósi, Sauðárkróki, Fjallabyggð og Húsavík og veita ráðgjöf til starfsfólks. Arna Rún mun hefja störf hjá HSN í sumar.

„Eldra fólki fjölgar á starfssvæði HSN eins og annarsstaðar. Starfsfólk hjúkrunardeilda og heimahjúkrunar HSN vinnur mikið og gott starf í þágu aldraðra sem búa heima þrátt fyrir heilsufarsvanda og skerta færni. Mitt hlutverk verður m.a. að vinna með starfsfólki heimahjúkrunar við að þróa áfram og bæta þjónustu við þennan hóp aldraðra með það markmiði að auka lífsgæði og getu þeirra til sjálfsbjargar,“ er haft eftir Örnu á heimasíðu HSN.

Það má geta þess að Arna Rún er svolítill Króksari, bjó til skamms tíma í foreldrahúsum hjá Óskari Jónssyni lækni og Aðalheiði Arnórsdóttur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir