Norska gæslan sakar Arnar HU um meintar ýsuveiðar

Arnars HU siglir hraðbyr út á Noregshaf. Skjámynd af Marine Traffic.
Arnars HU siglir hraðbyr út á Noregshaf. Skjámynd af Marine Traffic.

Frystitogarinn Arnar HU 1 sem er í eigu Fisk Seafood þurfti að sigla að ströndum Noregs í gær þar sem greiða þurfti úr ágreiningi við norsk yfirvöld vegna meintra ýsuveiða togarans í þarlendri lögsögu í febrúar í fyrra. Útgerðin reiddi fram tryggingu og Arnar siglir hraðbyr til veiða á ný.

Á Marine Traffic má sjá hvert strandgæsluskipið KV Barentshav hefur siglt eftir samtalið við Íslendingana.

  

 

Að sögn Gylfa Guðjónssonar útgerðarstjóra Fisk Seafood var togaranum siglt til Norður-Noregs þar sem gæslan kom um borð og greitt var úr málum. Trygging var lögð fram og gat togarinn því haldið til veiða á ný en málið verður tekið fyrir norskum dómstólum síðar á árinu.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir