Austurgata 5 verður ekki leikskóli

Skipulags- og byggingarnefnd Svf. Skagafjarðar hefur afturkallað leyfi um breytta notkun húsnæðis að Austurgötu 5 á Hofsósi en þar stóð til að hýsa leikskólann á staðnum. Segir í fundagerðinni  að það að flytja starfsemina þangað hafi verið gert í góðri trú um samþykki nágranna.

„Annað hefur komið í ljós eins og bréf eiganda Austurgötu 7 dagsett 19. desember 2016 ber með sér. Í ljósi framangreindra upplýsinga afturkallar skipulags- og byggingarnefnd áður samþykkta breytta starfsemi í Austurgötu 5,“ segir í fundagerðinni. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir