Nýtt riðutilfelli í Húnaþingi

Riðuveiki hefur verið staðfest í Húnaþingi vestra í Vatnsneshólfi en síðast greindist riða í hólfinu árið 2015. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. Á  heimasíðu Matvælastofnunar kemur fram að riðan hafi greinst í sýni úr kind frá bænum Vatnshóli en á bænum eru nú um 925 fjár. Bóndinn hafði samband við Matvælastofnun sem tók sýni úr kindinni og sendi á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum þar sem riðuveiki var staðfest.

Búið er í Vatnsneshólfi og í því hólfi hefur riðuveiki komið upp á einu búi á undanförnum 20 árum. Síðast greindist riða á bænum árið 1999. Ekki er talið að þetta tilfelli tengist riðutilfellunum í Tröllaskagahólfi þar sem riða greindist á fimm bæjum fyrir áramót. 
Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttekt á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir