Keypti sér Arrival strax daginn eftir níu ára afmælið / KRISTJANA STEFÁNS

Kristjana Stefáns. AÐSEND MYND
Kristjana Stefáns. AÐSEND MYND

Á síðustu tíu árum hafa vel á annað hundrað manns tjáð lesendum Feykis frá tón-lyst sinni. Þeir sem svara eru að sjálfsögðu eitthvað viðriðnir tónlist, ýmist að atvinnu eða áhuga, en eina prinsippið er að viðfangsefnin þurfa að hafa einhverja tengingu við Norðurland vestra. Þegar umsjónarmaður Tón-lystarinnar fór á frábæra tónleika með Svavari Knúti og Kristjönu Stefáns í Gránu sl. sumar barst honum til eyrna að Kristjana væri ættuð úr Fljótunum. Það var því ekki annað í stöðunni en að reyna að plata hana til að fræða lesendur um tón-lyst hennar.

Kristjana, sem starfar við tónlist og er m.a. aðjúnkt við Listasháskóla Íslands, býr nú í Vesturbæ Reykjavíkur en hún bjó fyrstu sjö ár ævinnar í Reykjavík en flutti síðan á Selfoss og kláraði þar stúdentspróf 1989. „Þannig að Selfoss er uppvaxtarbærinn minn. Flutti svo suður í frekara nám við Söngskólann í Reykjavík, þaðan til Hollands í Jazz nám og svo til Englands í einkatíma,“ segir hún en Kristjana hefur búið á Íslandi síðan 2002. „Tenging mín við Skagafjörð er að föðuramma mín, Sæunn Friðjónsdóttir, var fædd í Langhúsum í Fljótum. Hún var sett í fóstur á Svaðastöðum í Skagafirði aðeins 11 ára til 15 ára. Mamma hennar (langamma mín) hét Ólína Jónsdottir og hún átti bróður sem hét Guðmundur sem var pabbi Stefáns Íslandi tenórsöngvara.“

Kristjana er sennilega best þekkt sem söngkona en hún spilar að auki á píanó eða Wurlitzer, ukulele og tambórínu. Hún segist aðallega semja tónlist á píanó, einstaka sinnum á ukulele, og gerir öll sín demó í GarageBand.

Spurð út í helstu afrekin á tónlistarsviðinu segir hún: „Ég útskrifaðist frá Konunglega Listaháskólanum í Haag í Hollandi árið 2000 og er því fyrsti íslenski söngvarinn með háskólagráðu í jazzsöng. Svo er ég afar stolt að hafa unnið Íslensku sviðslistaverðlaunin – Grímuna fyrir tónlistina mína í söngleiknum Blái hnötturinn árið 2018.“ En áfram með smérið...

Hvaða lag varstu að hlusta á? River Man eftir Nick Drake í flutningi Lizz Wright. Hún er ein af mínum uppáhalds söngkonum í dag, stórkostleg rödd.

Uppáhalds tónlistartímabil? Get ekki gert upp á milli. Ég hlusta á svo fjölbreytta tónlist. Ef ég skoða hlustunarlistana mína þá er mikið Barokk sem er 1600-1750, jazz sem er 1930 til dagsins í dag, smá 80’s tónlist og svo á ég son sem er á kafi í tónlist og er ég að kynnast mikið af nýrri tónlist í gegnum hann.

Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Tek reglulega barokk æði, er á einu svoleiðis skeiði núna. Ég er með kontratenóra-blæti á háu stigi og nýjasti uppáhalds er frá Póllandi og heitir Jakub Jósef Orlinski. Ég staldra alltaf við ef ég heyri háleita fegurð í tónlist. Auðvita er það algjört smekksatriði hvað það þýðir fyrir hvern og einn. Í mínu tilfelli er það oftast fagrar laglínur eða spennandi hljómagangar og svo mikil raddfegurð. Sonur minn spilar mikið af gítarhlaðinni tónlist og ég hef uppgötvað fullt af frábærum, nýjum böndum í gegnum hann.

Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Mamma vann í Hljóðfærahúsinu á Laugarveginum áður en við flytjum á Selfoss þannig að ég er alin upp við að hlusta á plötur og fá reglulega geggjaðar plötur heim frá því að ég man eftir mér. En fyrsta platan LP sem ég keypti mér fyrir minn eigin pening var Arrival með ABBA. Það var daginn eftir níu ára afmælið mitt, að morgni 26. maí 1977, ég var svo spennt að ég varð að fara um leið og búðin opnaði.

Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Sem barn þá var það allt milli himins og jarðar. Eins og áður hefur komið fram þá var mamma að vinna í plötubúð og því var plötusafn heimilisins algjör kokteill. En ef ég á að nefna einhverja stólpa þá eru það klassísk píanó tónlist og sinfóníur, ABBA, Bítlarnir, Billie Joel, kórar og jazz. Svo var það 80’s tónlist á unglingsárunum ásamt iðnaðarrokki frá bróður mínum, smá pönktímabil og svo hvarf ég inní klassískar og jazzpælingar á námsárunum.

Hvaða græjur varstu þá með? Ég man ekki fyrir mitt litla líf af hvaða tegund plötuspilarinn okkar var þrátt fyrir að við slógumst um að fá að spila “okkar” plötur, ég og bróðir minn sem er þremur árum eldri. Ég man að ég fékk Crown kassettutæki í fermingargjöf 1983 frá pabba og ég sat við tækið á þriðjudagskvöldum og tók upp Lög unga fólksins.

Hvert var fyrsta lagið sem þú manst eftir að hafa fílað í botn? Penny Lane með Bítlunum þegar ég um fimm ára gömul og Crockodile Rock með Elton John kom strax í kjölfarið.

Hvaða lag getur eyðilagt fyrir þér daginn eða fer óstjórnlega í taugarnar á þér? Það eyðileggur ekkert lag fyrir mér daginn en ég fæ stundum laglínur eða frasa á heilann sem verða pirrandi eftir smá tíma, t.d. eins og Gangnam Style, Magarena eða svipað stöff. Þá er bara trikkið að blasta einhverju öðru og losa pirringinn.

Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Talking Heads, Prince, Tame Impala, Foreigner, Prefab Sprout, Talk Talk, Peter Gabriel, Pure Bathing Culture, Unknown Mortal Orchestra, Toto, George Harrison… ég get haldið endalaust áfram.

Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Ella Fitzgerald er alltaf mín go to kona. Einnig er Ahmads Blues platan með Ahmad Jamal tríóinu vinsæl svo og Bill Evans tríóið. En uppáhalds platan mín og hljómsveit allra tíma er Steve McQueen platan með Prefab Sprout. Get hlustað á hana alltaf, við öll tækifæri.

Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, á hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Ég væri til í að vera einhversstaðar á Ítalíu að hlusta á kontratenórinn Jakub Jósef Orlinski þar sem að Maxim Emelyanychev myndi stjórna hljómsveitinni og þá myndi ég taka með mér Gísla stóra bróður og Þórhildi Örvars tónlistarkonu og vinkonu mína. Ef ég mætti fara aftur í tímann þá myndi ég vilja fara til Þýskalands á Berlínar konsertinn með Ellu Fitzgerald árið 1960 með Birgittu Lyregaard vinkonu minni sem var með mér í náminu í Hollandi.

Hvað músík var helst blastað í bílnum þegar þú varst nýkominn með bílpróf? Eurythmics, Whitney Houston, Prefab Sprout, Talk Talk, Kate Bush, Phil Collins, Big Country, U2, Simple Minds, Mr.Mister og bara allt þetta vinsælasta 80’s stöff.

Hvaða tónlistarmaður hefur þig dreymt um að vera? Ella Fitzgerald sem söngkona, Ahmad Jamal sem píanisti og Paddy McAloon (Prefab Sprout) sem lagahöfundur.

Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út eða sú sem skiptir þig mestu máli? Steve McQueen platan með Prefab Sprout er sú sem ég leita alltaf í og tengist einhverri djúpri hjartatengingu. Frábærar lagasmíðar Paddy McAloon og brilljant pródúsjón Tomas Dolby. Svo verð ég að nefna Rumours plötu Fleetwood Mac líka. En er það ekki eins með okkur öll að platan sem bjargaði okkur frá angsti unglingsárana er sú sem okkur þykir vænst um?

Sex vinsælustu lögin á Playlistanum þínum? (lag/flytjandi)
Appetite
- Prefab Sprout
Wichita lineman - Glen Campell
I had a King - Joni Mitchell
Dreams - Fleetwood Mac
The Kiss - Judee Sill
Waft her, angels, through the skies -Richard Croft tenór (aría úr barokk óperunni Jeptha e. Händel)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir