Olíutankur á Hofsósi stóðst ekki lekapróf

Olíutankur við sjálfsafgreiðslustöð N1 á Hofsósi hefur verið tæmdur eftir að hann stóðst ekki lekapróf. N1 og Olíudreifing, í samvinnu við Heilbrigðiseftirlitið, rannsaka nú málið. Í tilkynningu frá N1 segir að tankar félagsins hafi verið þykktarmældir síðastliðið sumar af viðurkenndum aðilum í samræmi við 24. gr regulugerðar nr. 884/2017 og stóðust þeir það próf.  Tankarnir voru þrýstimældir í byrjun desember og stóðust þeir einnig það próf. Loks var gripið til þess ráðs að setja yfirþrýsting á tankana og kom þá í ljós að mögulega hefði einhver olía lekið. 

Umræddur tankur hefur verið tæmdur og var það gert snemma í ferlinu og var í framhaldi hreinsaður. Farið var ofan í tankinn og í ljós kom lítið gat en í framhaldi verður í geyminn sett vatn, blandað sápu, sem eltir slóðina og vinnur á því eldsneyti sem niður hefur farið.

Heilbrigðiseftirlit hefur sent tvö jarðvegssýni í rannsókn hjá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði við Háskóla Íslands. Niðurstöður úr fyrra sýninu, sem tekið var við Suðurbraut 6, er komið úr rannsókn. Í því greinist hvorki olíu- eða eldsneytismengun. Annað sýni sem tekið var nokkrum metrum frá eldsneytistönkum fór í rannsókn í dag og er beðið niðurstöðu áður en farið verður í frekari aðgerðir. Ljóst er að rannsaka þarf jarðveg í kringum eldsneytisgeyma frekar og mun N1 grípa til allra nauðsynlegra aðgerða til hreinsunar og eftirfylgni.

Í tilkynningunni er íbúum Hofsóss þökkuð góð samvinna og jafnframt er beðið afsökunar á því raski og umstangi sem fylgir aðgerðum af þessu tagi. N1 fullvissar alla að gripið verður til allra nauðsynlegra ráðstafana vegna þessa máls.

Fram kom í fréttum Rúv í gærkvöldi að nágrannar handan götunnar hafi orðið varir við bensínlykt inni í íbúðarhúsi sínu fyrir nokkrum mánuðum og af þeim sökum neyðst til að flytja út. Segja þau, Valdís Brynja Hálfdánardóttir og Rúnar Þór Númason, að lyktin hafi verið lítil í fyrstu en hafi svo stöðugt ágerst, þar til þau gáfust upp og fluttu úr húsinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir