Full Circle: Endurhugsun nýtingar úrgangs í fiskeldi

18. júní kl. 09:00-18:30 Hvað er að gerast Háskólinn á Hólum (með heimsókn til Ísponica á Hofsósi)
18 jún

Háskólinn á Hólum býður til námskeiðsins Full Circle – Rethinking Waste in Aquaculture þann 18. júní. Fjallað verður um hagnýtar leiðir til að auka nýtingu auðlinda, draga úr sóun og skapa ný verðmæti úr aukaafurðum fiskeldis og matvælaframleiðslu. Fyrirlesarar koma bæði úr rannsóknum og atvinnulífi. Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku, en íslenskt kynningarefni verður í boði fyrir þátttakendur. Dagskránni lýkur með heimsókn til Ísponica á Hofsósi. Námskeiðið er öllum opið, þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg fyrir 15. júní. Morgunkaffi, hádegisverður og kvöldverður eru innifalin og þátttakendur fá þátttökuskírteini.

Nánari upplýsingar, ásamt dagskrá og skráningarformi, má finna hér: https://www.holar.is/is/moya/calendar/namskeid-f-u-l-l-c-i-r-c-l-e-rethinking-waste-in-aquaculture

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.