Molduxi Trail 2026

7. ágúst kl. 17:00-19:00 Hvað er að gerast Sauðárkrókur - Molduxi
7 ágú
Utanvegahlaupið Molduxi Trail verður haldið í annað sinn á Sauðárkróki föstudaginn 7. ágúst 2026 eftir frábæra frumraun á síðasta ári þar sem yfir 100 manns mættu í alvöru, íslensku skítaveðri. Í ár lofum við BETRA veðri, FLEIRA fólki, ENN meiri stemningu og sama GEGGJAÐA útsýninu sem hlaupið býður upp á! Viltu heyra meira?
Hlaupið fer fram í fallegri og fjölbreyttri náttúru í nágrenni Sauðárkróks, þar sem hlauparar fá að upplifa skemmtilegar utanvegaleiðir, lifandi landslag og stórkostlegt útsýni yfir Skagafjörðinn í allar áttir!
Líkt og í fyrra verður upp á tvær vegalengdir:
12 km – skemmtileg og aðgengileg leið fyrir öll þau sem vilja njóta utanvegahlaups með einstöku útsýni.
20 km – Krefjandi en GEGGJUÐ leið fyrir þau sem vilja taka aðeins meira á því og næla sér í ITRA-punkt. Þessi leið nær alla leið upp á fjallið Molduxa (1033 m hækkun).
Báðar leiðir gefa ITRA stig og hefjast þær og enda í hinum huggulega Litla Skógi. Leiðirnar liggja báðar um skóga, móa, mela og fjalllendi, með stórkostlegu útsýni yfir Skagafjörðinn, Drangey, Málmey og Héraðsvötnin, svo eitthvað sé nefnt.
Ræsing:
20 km – kl. 17:00
12 km – kl. 18:00
Nánari upplýsingar um hlaupið og skráningu má finna á www.netskraning.is/molduxitrail - Hentu í skráningu, merktu við þennan viðburð og fylgstu með fram að hlaupi!
Við hvetjum ykkur einnig til að fylgjast með peppinu fram að hlaupi á instagramsíðu hlaupsins - molduxi.trail

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.