Ólafur Bjarni varð Íslandsmeistari | Arney Sindradóttir skrifar

Ólafur Bjarni ásamt Atla þjálfara. MYND AÐSEND
Ólafur Bjarni ásamt Atla þjálfara. MYND AÐSEND
Dagana 20.-22. ágúst fór fram Íslandsmót unglinga í höggleik 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Golfklúbbur Skagafjarðar átti fimm glæsilega fulltrúa; Brynjar Morgan Brynjarsson, Sigurbjörn Darra Pétursson og Gunnar Atla Þórðarson sem kepptu í flokki 13-14 ára - og Ólaf Bjarna Þórðarson og Karl Goðdal Þórleifsson í flokki 12 ára og yngri. Strákarnir allir sem einn stóðu sig með prýði og voru klúbbnum til mikils sóma. Það fór svo að Ólafur Bjarni landaði sigri og þar með Íslandsmeistaratitli, sem er ekkert nema stórkostlegur árangur hjá dreng á tólfta aldursári. Þrotlaus vinna og þrautseigja liggur að baki, og uppskeran eftir því.
 
Við Þórður Karl tókum þá skynsamlegu ákvörðun á sínum tíma að gera Sauðárkrók að okkar framtíðarheimili, og vorum ákveðin að hér myndum við ala börnin okkar upp. Og litla skynsemis ákvörðunin sem það var. Hér búum við þann lúxus að hafa golfklúbb í fremsta flokki með einum besta golfvelli landsins, aðstöðu í metnaðarfullri uppbyggingu og drífandi starfi. Það eru ekkert nema stórkostleg forréttindi fyrir ungan dreng eins og Ólaf Bjarna að sumarfríinu geti hann eytt að stórum hluta uppi á golfvelli. Rútínan er einföld alla daga; fara á fætur, borða morgunmat, upp á golfvöll, heim í hádegismat, upp á golfvöll og svo loks heim í kvöldmat.
 
En þó svo að Ólafur hafi endalausan áhuga og metnað, og það sé hann sem haldi um kylfuna og spili golfið þá er þessi árangur ekki honum einum að þakka - þessi Íslandsmeistaratitill er ekki síður golfklúbbsins. It takes a village, eins og skáldið sagði, og þorpið er þetta frábæra samfélag sem golfklúbburinn er. Meðspilarar Ólafs á öllum innanfélagsmótunum, hvatning frá eldri og reyndari iðkendum í unglingastarfinu, framlag stjórnar GSS og þá sérstaklega Unnar Ólafar fyrir barna- og unglingaráð, pylsurnar í golfskálanum, æfingaaðstaðan, samheldni allra iðkenda í barnastarfinu - þetta telur allt og skiptir miklu máli.
 
Mest um vert er þó þjálfun barna og unglinga, sem Atli Freyr Rafnsson hefur haldið utan um síðan Ólafur byrjaði að æfa fimm ára gamall. Já, áhuginn byrjaði snemma - hann var enn í leikskóla þegar ég skutlaði honum daglega á golfæfingar. Atli á mikinn heiður skilinn fyrir hans óeigingjarna starf fyrir klúbbinn og krakkana. Þolinmæðin, vinsemdin og metnaðurinn skín í gegn og hans þrotlausa vinna við að leiðbeina og vera til staðar verður seint fullþökkuð. Þáttur systkinanna Unu Karenar og Tómasar Bjarka Guðmundsbarna er einnig heilmikill. Una kom að þjálfun í sumar og Tómas hefur verið með vetraræfingar í golfherminum síðustu ár. Þessir þjálfarar allir eru krökkunum miklar fyrirmyndir - enda hafa iðkendur GSS ítrekað fengið lof fyrir góða framkomu á mótum sumarsins.
 
Takk þorp. Takk GSS. Takk Atli.
 
Arney Sindradóttir,
móðir Ólafs Bjarna Þórðarsonar.

Fleiri fréttir