Myrka Ísland í Sögusetri íslenska hestins
14. ágúst kl. 20:00-21:00
Hvað er að gerast
Sögusetur íslenska hestsins á Hólum í Hjaltadal
14
ágú
Hvað gerist þegar íslenski hesturinn, dramatískar og óvenjulegar sögur úr fortíðinni og hamfarahyggja Borgfirðinga mætast á Hólum í Hjaltadal?
Hlaðvarpið Myrka Ísland hefur undanfarin ár einbeitt sér að því að draga fram það skuggalegasta, sérkennilegasta og stundum óhugnanlegasta úr íslenskri sögu. Anna Dröfn og Sigrún hafa nú framleitt hundrað þætti þar sem þær kafa ofan í margvíslega atburði, örlög og sögur úr fortíðinni.
Föstudaginn 14. ágúst kl. 20.00 bregða þær stöllur sér norður yfir heiðar og taka upp sérstakan þátt Myrka Íslands fyrir framan áhorfendur í Sögusetri íslenska hestsins á Hólum.
Þar sem upptakan fer fram á Sögusetri íslenska hestsins verður hesturinn auðvitað ekki skilinn eftir úti í haga.
Stjórnendur hyggjast freista þess að flétta saman íslenska hestinn og sögur hans, sagnfræði, hamfarir, Borgarfjörð, Norðurland, almenna eymd og mögulegar hetjudáðir manna og dýra.
Hvernig tekst að koma þessu öllu fyrir í einum þætti?
Það kemur í ljós á Hólum.
Það kemur í ljós á Hólum.
Verið hjartanlega velkomin á óvenjulegt kvöld þar sem saga íslenska hestsins fær örlítið dekkri blæ.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.