Prjónakvöld í Drangey Studio verslun og Rendur

13. ágúst kl. 19:00-21:00 Hvað er að gerast Drangey Studio - Aðalgata 4, Sauðárkróki
13 ágú

Prjónakvöld hjá Drangey Studio og Rendur verður haldið miðvikudaginn 13. ágúst kl. 19:00–21:00 í verslun Drangey Studio á Sauðárkróki.

Í tilefni af Hinsegin dögum í Skagafirði bjóðum við til notalegrar samverustundar þar sem öll eru velkomin að taka með sér prjónana sína og njóta í góðum félagsskap. Kvöldið er ætlað öllum sem hafa áhuga á prjóni og handavinnu, hvort sem þau eru byrjendur eða lengra komin.

Þetta verður hefðbundið prjónakvöld með léttu spjalli, innblæstri og tækifæri til að kynnast öðru prjónaáhugafólki. Komdu með eigið verkefni og eigðu notalega stund með okkur.

? Öll velkomin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.