Lægri vextir, stöðugra verðlag og lægri framfærslukostnaður skipta heimili og fyrirtæki miklu máli. Það er því ekki skrýtið að þau mál séu fyrirferðarmikil í umræðunni um Evrópusambandið. Íslendingar borga hæstu vexti í Evrópu og við borgum mest fyrir matarkörfuna í annars frábæru landi. Já, þetta eru sterk rök fyrir því að segja JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst nk.
Við stöndum frammi fyrir mikilvægri þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29.ágúst. Niðurstaðan gæti varðað miklu um framtíð mína og minna og byggðarlagsins míns. Ég er bóndi og við fjölskyldan rekum býli á Brúnastöðum í Fljótum. Þar stundum við ýmiskonar starfsemi, erum með stórt sauðfjárbú á íslenskan mælikvarða, framleiðum nautakjöt og mjólkum geitur til að gera geitaosta. Við rekum einnig ferðaþjónustu og leggjum áherslu á að öll þessi verkefni styðji hvert annað. Við bjóðum gestum og gangandi að koma og kynna sér það sem við erum að gera og kaupa afurðirnar okkar.
Frá því að fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnar tóku gildi um síðustu áramót hefur verðbólgan farið vaxandi og stýrivextir hækkað. Fram að því fóru vextir lækkandi á grundvelli fjárlaga síðustu stjórnar. Ríkisstjórnin hefur ítrekað tekið ákvarðanir frá áramótum sem hafa stuðlað að aukinni verðbólgu og hefur sama og ekkert gert til þess að forða því að kjarasamningar verði í uppnámi síðar í mánuðinum. Þvert á móti hefur hún haldið áfram í sumar að kynda undir verðbólgunni. Meðal annars með hækkun komugjalda á heilsugæzlustöðvar um 100%. Vanhæfni ein og sér getur ekki útskýrt framgöngu hennar.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Að þessu sinni er það Heiðdís Pála Áskelsdóttir sem svarar Tón-lystinni en það skortir ekki tónlistaráhugann í hennar fjölskyldu. Hún er alin upp í Skagafirðinum, fædd árið 2008 og búin að búa á Króknum allt sitt líf. Foreldrarnir eru Vala Bára Vals og Bræðslubóndinn Áskell Heiðar frá Borgarfirði eystri. Nú stundar Heiðdís Pála nám við Menntaskólann á Akureyri og býr á vistinni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.