Lið Tindastóls endurnýjar kynnin við ENBL-deildina

Síðasta vetur tók karlalið Tindastóls þátt í Evrópukeppni í körfubolta. Þátttakan heppnaðist vel, liðið átti marga stórfína leiki í keppninni, það náði góðum árangri og frábær stemning skapaðist í Síkinu sem vakti verðskuldaða athygli út fyrir landsteinana og skilaði körfuknattleiksdtildinni tekjum. Í yfirlýsingu frá stjórn körfuknattleiksdeildar í morgun var sagt frá því að ákveðið hafi verið að endurtaka leikinn og verða Stólarnir því enn á ný þátttakendur í ENBL-deildinni.

Í yfirlýsingunni segir: „Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur, að vandlega ígrunduðu máli, ákveðið að karlalið félagsins taki þátt í ENBL tímabilið 2026/2027. Jafnframt var skoðað hvort þátttaka í FIBA Europe Cup væri raunhæfur kostur. Þar hefði liðið þurft að leika 10 leiki frá 8. október og fram að jólum, og mat stjórnin það fyrirkomulag nánast ógerlegt fyrir íslenskt lið á Norðurlandi.

Í ENBL keppninni mun Tindastóll leika þrjá leiki í einni ferð í lok september, sem styttir biðina eftir alvöru leikjum og nýtist liðinu vel í undirbúningi fyrir tímabilið. Á tímabilinu sjálfu verða fjórir heimaleikir leiknir á Sauðárkróki og líkur eru á að þekkt lið komi í heimsókn. Þá fer liðið einnig eina ferð erlendis og leikur þar einn leik. Allir heimaleikir Tindastóls í ENBL verða eingöngu aðgengilegir á Tindastóll TV og útileikirnir verða einnig sýndir þar.

Er það von stjórnar kkd Tindastóls að þetta muni auka skemmtun stuðningsmanna og verða góð kynning fyrir Skagafjörð í leiðinni. Við hlökkum til að takast á við verkefnið með liðinu, samstarfsaðilum og okkar frábæru stuðningsmönnum. Saman getum við gert tímabilið 2026/2027 að eftirminnilegri upplifun fyrir félagið og alla Skagfirðinga.“

Það er því útlit fyrir helling af körfubolta á Króknum í vetur.

Fleiri fréttir