Á Blönduósi hefjast 17. júní hátíðarhöld kl. 8:00 þegar fánar verða dregnir að hún en kl. 10:00 -11:00 hefjast þeir leikir sem börnin bíða hvað spenntust eftir en þá verður þeim boðið á hestbak í Reiðhöllinni Arnarger
Auglýst hefur verið laust til umsóknar skrifstofustarf hjá Húnavatnshreppi en starfið fellst m.a. í færslu bókhalds, launakeyrslu, gjaldkera- og innheimtustörfum, og umsjón með heimasíðu sveitarfélagsins.
Upplýsingar eru veittar ...
Nú er tækifæri fyrir verktaka að komast í rammasamning ríkisins um viðhaldsþjónustu fasteigna en nýtt rammasamningsútboð á þjónustu verktaka í iðnaði nær til viðhaldsverkefna á fasteignum ríkisins um allt land. Útboðið tek...
Sýning á gögnum úr verkefninu Altarisdúkar í Húnavatnssýslum verður opin á Þingeyrum 18.-19. júní nk. en verkefnið er unnið af Jenný Karlsdóttur og Oddnýju E. Magnúsdóttur í samvinnu við Byggðasafn Húnvetninga og Strandaman...
Stjórn Landsmóts ehf. hefur tekið þá ákvörðun að breyta gildistíma helgarpassa inn á Landsmótið á Vindheimamelum. Þeir taka því gildi kl. 18.15 föstudaginn 1. júlí en ekki á miðnætti eins og áður var búið að gefa út.
...
Húnahornið – Fréttavefur Húnvetninga – fagnar 10 ára afmæli í dag en það var þennan dag fyrir 10 árum sem fyrsta fréttin birtist á Húna.is og síðan þá hafa verið birtar fréttir úr Húnaþingi og nágrenni nærri daglega.
...
Félagsmót Neista var haldið á Blönduósvelli í gær og tókst með ágætum. Veðrið var "ótrúlega" gott að mati tíðindamanns Neista, ekki rok, svolítið svalt en þurrt að mestu. Par mótsins, valið af dómurum, voru Sigurgeir Njá...
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
14.06.2011
kl. 08.32
Kántrýsetur var formlega opnaði í Kántrýbæ á Skagaströnd á laugardaginn en þar er ævintýraleg og óvenjuleg saga Hallbjörns Hjartarsonar til sýnis. Í tilefni opnunarinnar setti Magnús Kjartansson saman hljómsveit til heiðurs Hal...
Það var kalt á Króknum í gær, norðanátt og hitastigið ekki nema nokkrar gráður þegar flautað var til leiks í leik Tindastóls/Hvatar og Reynis frá Sandgerði. Heimamenn voru sterkari aðilinn til að byrja með og reyndu að spi...
Fyrr í dag kom fram á Facebook síðu Badmintondeildar Tindastóls að Emma Katrín Helgadottir, badmintonkona frá Badmintondeild Tindastóls, hefur verið valin í U19 ára landslið Íslands í badminton.
Það er opinn dagur og uppskeruhátíð hjá Fornverkaskólanum og fer dagskráin fram á Tyrfingsstöðum á Kjálka í Skagafirði á morgun, 19. júní, og hefst um kl. 14. Í tilkynningu segir: „Í ár höfum við ýmsar ástæður til að fagna; Fornverkaskólanum hlotnaðist nýverið viðurkenning frá Europa Nostra, sem eru ein virtustu minjaverndarverðlaun í Evrópu. Verðlaunahátíðin fer fram 28. maí í Nikosíu á Kýpur og á opnum degi ætlum við að fagna áfanganum með vinum og vandamönnum og afhjúpa viðurkenningarskjöld sem Europa Nostra samtökin veittu Fornverkaskólanum.“
Það var í miðri heimsstyrjöldinni fyrri að drepið var dyra heima hjá ömmu minni og afa í Þingholtsstræti 17 í Reykjavík og Nanna föðursystir mín kom til dyra, barn að aldri. Komumaður spurði hana hvaðan hún væri og hún svaraði: Ætli ég sé ekki bara Reykvíkingur. Gall þá við þrumuraust ömmu hennar og langömmu minnar ofan af lofti: Hvers lags er þetta, barn? Þú ert Skagfirðingur! Föðuramma mín, Þórunn Pálsdóttir, var Skagfirðingur og það er ég því líka og við hjónin raunar bæði. Sex löng sumur og sælurík, tvö ár alls, var ég strákur í sveit og við bræðurnir allir hjá frændum okkar á Stóra-Vatnsskarði í Skagafirði, vestasta bænum í sýslunni.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Friðrik Margeir Friðriksson er Skagfirðingur í húð og hár, býr á Sauðárkróki og af hinum eðalárgangi 1960. Margeir segist klæmast á kassagítar og basla við bassaleik og leikur hann núna í húsbandi Leikfélags Sauðárkróks en verið er að æfa nýtt leikrit sem samið er í kringum lög Geirmundar Valtýssonar. Margeir settist við tölvuna og svaraði nokkrum laufléttum spurningum í Tón-lystinni.