Enginn veit fyrr en allt í einu | Leiðari 45. tölublaðs Feykis

Vetur í Aðalgötunni á Króknum. TEIKNING: ÓAB
Vetur í Aðalgötunni á Króknum. TEIKNING: ÓAB

Nú er rétt mánuður til jóla og myrkrið orðið kolsvart. Það er eiginlega orðið sjaldgæft að snjórinn fái einhverja daga til að létta á myrkrinu, það liggur við að hann sé horfinn löngu áður en maður nær að venjast honum. Ég veit ekki hvort það er rétt munað hjá mér en í minningunni var snjórinn meiri og staldraði lengur við þegar ég var í grunnskóla.

Það eru fjórar vikur í vetrarsólstöður sem eru 21. desember. Þá er sólin á lofti í þrjá tíma og eina mínútu á Króknum, fjórum mínútum lengur á Blönduósi og 24 mínútum lengur á Hvammstanga.

Þetta þýðir auðvitað að það styttist í jólin. Þessa viku eru kláruð tvö blöð af Feyki og send í prentun. Fyrst þetta blað á mánudegi og síðan fer JólaFeykir í prentun tæpum fjórum dögum síðar. Það er því í nógu að snúast þessa dagana.

Það hjálpar til að margir eru að gefa út bækur á þessum tíma og vilja gjarnan fá umfjöllun og senda jafnvel efni til birtingar. Þannig er að í þessu tölublaði er mikið af aðsendu efni sem við höfun ekki þurft mikið að hafa fyrir.

Það er hins vegar meira umstang í kringum JólaFeyki sem væntanlega verður í það minnsta 40 síður. Eitthvað fannst okkur í byrjun mánaðar sem lítið efni væri í það ágæta blað en eins og vanalega þá rætist úr. Maður veit aldrei hvað skilar sér í hús þegar ýtt er úr vör. Sumir skila stuttum svörum á meðan aðrir geta gert mikið úr fáum spurningum.

Að þessu sinni undu mörg viðtölin í JólaFeyki upp á sig og kalla á meira pláss en upphaflega var reiknað með. Það er lúxusvandamál en gæti þýtt að sumt efni verði að bíða birtingar og dúkki upp í Jólakveðjublaði Feykis sem kemur út um miðjan desember.

Það er gaman að vinna jólablaðið og allir fjórir starfsmenn Nýprents vinna efni í blaðið. Þó mörgum vaxi það í augum að svara aðsendum spurningum – því nú eru flest viðtöl unnin þannig að fólk fær spurningarnar sendar og pikkar svo inn svörin – þá er það nánast undantekningarlaust að fólk er ánægt að verki loknu og jafnvel þakklátt. Það er góð tilfinnig fyrir okkur.

Oft eru viðtalsefnin að rifja upp gamla tíma, gömul jól. Og það er heldur betur dýrmætt að gera það. Hversu oft gerist það að þeir sem yngri eru hugsa með sér; það væri nú gaman að spyrja afa eða ömmu, pabba eða mömmu, hvernig jólin voru í þeirra ungdæmi svo eitthvað sé nefnt.

En svo er ákveðið að bíða með að spyrja spurninganna og svo er það orðið of seint því enginn veit fyrr en allt í einu.

Þau eru mörg viðtölin sem tekin eru í Feyki. Þau geta nú kannski fæst kallast tímamótaviðtöl en þetta eru engu að síður dýrmætar heimildir. Það er ekki víst að fólki finnist merkilegt að svara Rabb-a-babbi, eða hvað það nú er, en einhvern tímann – kannski eftir fleiri, fleiri ár – verður þetta efni konfekt fyrir barnabarn eða barnabarnabarn.

Óli Arnar Brynjarsson,
ritstjóri

Fleiri fréttir