Annað opna sviðskvöldið í Gránu | Aline Garcia skrifar
Síðastliðinn sunnudag, 22. nóvember, komum við saman á öðru opna sviðskvöldinu okkar í Gránu á Sauðárkróki. Áhorfendur tóku kvöldinu fagnandi og þrír þátttakendur stigu á svið og gáfu sitt besta. Hanna Lára flutti tvö frumsamin ljóð, Aline Garmune lék nokkur lög á gítar og Sölvi Sveinsson sagði okkur frá nýju bókinni sinni.
Um leið var opnuð ljósmyndasýning Carolin Giese með myndum hennar af íslenskum hestum. Ljósmyndirnar voru til sölu og Carolin kynnti einnig nýtt dagatal fyrir árið 2027 með myndum úr safni sínu.
Það var einstaklega gaman að njóta frumsamins efnis og sjá hvað hver og einn kom með á sviðið. Maður veit aldrei hvað maður fær að uppgötva, því ekkert opið sviðskvöld er eins.
Ljósmyndasýningin verður opin í Gránu yfir jólatímann. Næsta opna svið verður með jólalegu ívafi og samhliða því verður jólamarkaður. Við hittumst í Gránu sunnudaginn 20. desember.
Langar þig að syngja jólalög eða flytja ljóð eða texta sem tengjast jólunum? Þá er þetta tækifærið þitt!
Skráning er hafin. Sendu okkur skilaboð í gegnum opinbera samfélagsmiðlareikninga Northern Mics ef þú vilt taka þátt.
Aline Garcia

