Að skapa samfélag | Freyja Rut Emilsdóttir skrifar
Hvernig búum við til samfélag? Hvað er samfélag?
Auðvitað er þetta flókið samspil margra þátta, og hugtakið sjálft er notað á ýmsa vegu. Við tölum um alls konar samfélög þvert á hið stóra samfélag allra íbúa. Við tölum td um skólasamfélagið og íþróttasamfélagið, og eigum þá oftast við hóp fólks sem kemur að þessum geira, t.d. nemendur., kennara, stoðkerfið, foreldra osfrv. En stundum tölum við um bændasamfélagið, og þá er gjarnan átt við alla, ekki bara þá sem starfa í landbúnaði, og þá erum við að nota þetta hugtak til að lýsa einhverju samhengi milli menningar, atvinnu og búsetu.
Mig langar að kafa aðeins dýpra í hvað það er sem gerir stað að samfélagi, og hvað þarf til þess? Er það fjöldi íbúanna, er það atvinnuvegurinn sem meirihluti íbúanna starfar við, er það sameiginlegt áhugamál? Þó grunninnviðirnir séu mikilvægir, hvað er það samt sem breytir stað úr vinnubúðum þar sem fólk vinnur, borðar og sefur – yfir í lifandi samfélag þar sem fólk vill setjast að og festa rætur?
Þegar fólk velur sér búsetu í dag, er það ekki lengur bara að leita að vinnu eða ódýru húsnæði. Það leitar að búsetugæðum, lífsgæðum. Frelsi og nálægð við náttúruna er sterkt aðdráttarafl, en það dugar ekki eitt og sér ef félagslegur jarðvegur er grýttur. Það sem tengir fólk saman, myndar samtal og eykur lífsgæði er menningin, listirnar og sköpunin. Þau eru límið á milli fólksins. Án þess líms getur fólk búið hlið við hlið árum og áratugum saman án þess að mynda raunverulega samkennd eða tilfinningu fyrir því að tilheyra samfélaginu.
Skapandi störf
Ein stærsta áskorunin í mörgum bæjarfélögum er hversu lítið skapandi störf sjást í daglegu umhverfi. Ungt fólk sér vinnuvélar, verksmiðjur og hefðbundna þjónustu, sem sannarlega eru nauðsynleg og mikilvæg störf, þegar skapandi störf eru ósýnileg ályktar unga fólkið oft að slíkur starfsferill sé ekki raunhæfur kostur „hérna heima“. Það vantar fyrirmyndir sem sýna að það er líka hægt að vera tónlistarmaður, hönnuður eða rithöfundur í heimabyggð. Við þurfum að gera þessi störf sýnileg og eftirsóknarverð í augum ungu kynslóðarinnar.
Hvernig gerum við það? Tónlistarskólar og listgreinakennsla eru raunverulegir grunninnviðir á borð við hita- og vatnsveitu. Þeir ala ekki bara af sér listamenn, heldur líka gagnrýna hugsendur og skapandi einstaklinga sem nýtast í öllu atvinnulífi. Við þurfum að hafa listafólk og skapandi fólk sem hluta af daglegu lífi og verkefnum samfélagsins, við þurfum að gefa fólki tækifæri til að kynnast sköpunarferlinu og fólkinu á bak við það, ekki bara lokaafurðinni og við þurfum að viðurkenna skapandi störf sem fullgildan hluta af atvinulífi og verðmætasköpun staðarins. Til að skapandi greinar blómstri þarf meira en bara vilja; það þarf rými, bæði huglægt og hlutlægt. Það þarf tíma og svigrúm til að móta hugmyndir en það þarf líka húsnæði; vinnustofur, æfingahúsnæði, tónlistarskóla, dansstúdíó, sýningarrými og góð almenningsrými þar sem fólk getur hitt hvert annað “á förnum vegi”. Samfélag er ekki búið til með því einu að byggja hús. Það verður til þegar hlúð er að fólkinu sem fyllir húsin af lífi, samtali og hugmyndum. Ef við viljum blómstrandi byggð verðum við að tryggja að sköpunarkrafturinn að fá að njóta sín sem óaðskiljanlegur hluti af innviðum, atvinnulífi og sameiginlegri sjálfsmynd.
Aðalgata 21
Ferðaþjónusta er oft flokkuð sem þjónustugrein, en hún er líka skapandi starf í fullri merkingu þess orðs. Kjarni hennar er ekki að afgreiða heldur að búa til upplifun, og það krefst hugmyndaflugs, næmni og listrænnar sýnar. Besta ferðaþjónustan byrjar heima. Hún byggir á því sem samfélagið á nú þegar og er stolt af: sögunni, handverkinu, tónlistinni, matnum og fólkinu sjálfu. Þegar gestir koma til að upplifa raunverulega menningu, en ekki sviðsetta eftirmynd af henni, fá heimamenn ástæðu til að rækta hana. Tónleikar í gömlu félagsheimili, heimagerðar kaffiveitingar eða spennandi körfuboltaleikur geta orðið að upplifun sem gestir muna hvað best og heimafólk nýtur ekki síður sjálft.
Nú stendur starfsemi Sýndarveruleika; sýningin 1238, rekstur veitingastaðarins Grána Bistró, gjafa- og minjagripaverslunarinnar Gránubúðar, ferðaskrifstofunnar Lóu Travel, ásamt fjölda nýsköpunar- og tækniverkefna, á tímamótum. Það er ekkert launungarmál að ferðaþjónusta á Norðurlandi vestra á enn talsvert inni sem atvinnugrein, og landshlutinn er eftirbátur annarra svæða bæði þegar kemur að hlutfalli ferðaþjónustu af heildaratvinnutekjum landshluta og fjölda starfandi í ferðaþjónustu, auk þess sem áætlaðar beinar skatttekjur af ferðaþjónustu eru meðal þeirra lægstu á landinu hjá öllum sveitarfélögum landshlutans (þessar upplýsingar eru aðgengilegar meðal annars á www.ferdagogn.is) Hér eru því gríðarmörg tækifæri sem enn á eftir að hagnýta og leggja þarf áherslu á þrautseigju, seiglu og sveigjanleika til að ná markmiðum um sjálfbær heilsársstörf í ferðaþjónustu.
Markmiðið með fjölbreyttum rekstri í húsnæðinu við Aðalgötu 21 hefur þó ekkert breyst, það hefur frá upphafi verið að efla tæknilega nýsköpun og menningartengda ferðaþjónustu, vera leiðandi á landsvísu í nærandi ferðaþjónustu og vera mikilvægur hlekkur í að skapa heilsársstörf i ferðaþjónustu á svæðinu, með því að halda úti rekstri allt árið og sinna virku markaðsstarfi; að stækka kökuna öllum til heilla. Nú reynir enn og aftur á að sýna þrautseigju í verki, því þrátt fyrir erfiðar ytri aðstæður, krefjandi rekstrarumhverfi og mikla óvissu hefur opnun sýningarinnar á ný og endurnýjað samtal við Skagafjörð sýnt fram á ótvírætt mikilvægi starfseminnar fyrir svæðið.
Framundan er vinna við að tryggja áframhaldandi rekstur og uppbyggingu í menningarstarfi, skapandi greinum og ferðaþjónustu þar sem markmiðið er að tryggja að sköpunarkraftur, nýsköpun og menning haldi áfram að styrkja stoðir samfélagsins til framtíðar, að efla skapandi samfélag og gera svæðið enn eftirsóknarverðara til búsetu og heimsókna.
Nú auglýsir sveitarfélagið Skagafjörður, í nánu samráði við Sýndarveruleika, eftir hugmyndum og aðilum sem vilja taka þátt í þessari vegferð, stíga inn í starfsemina við Aðalgötu 21, skapa meira líf í gamla bænum og fylla húsið af starfsemi, grósku, hugmyndum og verkefnum til verðmætasköpunar. Við erum í þessu saman, vilt þú vera með?
Freyja Rut Emilsdóttir,
framkvæmdastjóri Sýndarveruleika ehf
