Aldarafmæli Huppu á Kluftum og nautgriparækt í Skagafirði | Jón Viðar Jónmundsson skrifar
Tilgangur þessa greinarkorns er að hvetja áhugamenn um nautgriparækt til að taka þátt í ráðstefnu á Flúðum 3. nóvember næstkomandi. Hún er haldin til að minnast 100 ára afmælis Huppu á Kluftum þann dag. Fundur hefst kl 11 og mun standa til kl 17. Hrunamannahreppur, Nf. Hrunamanna og Bsb. Suðurlands standa að ráðstefnunni. Þar verður mjög fróðleg og þétt dagskrá um íslenska nautgriparækt með aðaláherslu á dreifingu Kluftstofnsins um allt land á síðustu öld og þær ótrúlegu framfarir í mjólkurframleiðslunni sem dreifing hans olli.
Huppa var mesti einstaki kynbótagripur í íslenskri búfjárrækt. Áhrif stóðhesta og kynbótahrúta blikna í þeim samanburði. Í lok ráðstefnunnar verða kynntar nýjar niðurstöður um áhrif gena Huppu hjá íslenskum nautgripum í dag. Hliðstæð áhrif gena eins kvenkyns einstaklings í búfjárrækt í heiminum verða hvergi í heiminum fundin fyrir neinn virkan búfjárstofn.
Dagskrá verður í stuttu máli ítarleg kynning á Huppu og dreifingu gena hennar. Stutt kynning á Kluftum sem bújörð. Gerð grein fyrir hvernig genin eru nýtt í dag í ræktunarstarfinu. Saga Huppuhornsins veglegustu verðlauna í íslenskri nautgriparækt sögð í stuttu máli. Fjallað verður um litafjölbreytni stofnsins og rakin áhrif Huppu á hana. Fjallað um fjölbreyti í nafngiftum kúa og stöðu nafnsins Huppa. Lokaerindið um hlut gena Huppu í stofninum í dag og margra þekktustu afkomenda hennar.
Í tilefni afmælisins gefur bókaforlagið Skrudda út bókina Huppa á Kluftum þar sem efni ráðstefnunnar er ítarlega kynnt auk nokkurra fleiri greina um íslenska nautgriparækt sem beint eða óbeint tengjast Huppu.
Fyrst ég sting niður penna bæti ég við örfáum orðum um fyrstu kynni mín af skagfirskri nautgriparækt og fyrstu dreifingu Kluftastofnsins í Skagafirði.
Ein fyrstu kynni voru voru sumarið 1964 þegar Jóhannes Eiríksson kom á kúasýningar í Svarfaðardal úr Skagafirði. Hann lýsti skagfirsku nautgriparæktinni að margir þekktu kýrnar með nafni en undantekning að um foreldra væri annað vitað en það hefðu verið gleymt naut og kýr. Væri hins vegar bent á truntu uppá fjallsegg væri þulið bindi af ættbók hrossa. Það sem ég les úr Búnaðarritinu rímar við þetta að þeir voru eins og Húnvetningar aftar á merinni í nautgriparækt en aðrir bændur. Félagslegt starf í molum.
Ragnar Eiríksson kemur uppúr 1970 til starfa og byggir strax upp öflugt starf og skapar mikinn áhuga. Það starf hefur síðan aðeins eflst og nautgriparækt í Skagafirði um flest orðin ein sú kraftmesta í landinu.
Landnám Kluftakynsins verður tiltölulega snemma með nokkrum nautum sem flest voru í einkaeign og hlutu því of litla dreifingu. Almenn dreifing kynsins má segja og verði fyrst með tilkomu Kynbótastöðvarinnar á Blönduósi á sjöunda áratuginum en skagfirskir kúabændur munu hafa nýtt sér þjónustu hennar vel strax frá byrjun.
Endurtek áskorun mína til bænda að bregða sér á ráðstefnuna á Flúðum 3.nóvember.
Jón Viðar Jónmundsson.
