Ísland í kjörstöðu til að mæta vaxandi þörf á gagnahýsingu

Jóhanna Hlín, Björn Brynjúlfsson, Þorvarður Sveinsson, Dave Tropeano og Halldór Már Sæmundsson. AÐSEND MYND
Jóhanna Hlín, Björn Brynjúlfsson, Þorvarður Sveinsson, Dave Tropeano og Halldór Már Sæmundsson. AÐSEND MYND

Ísland getur verið fremst meðal jafninga þegar kemur að hýsingu gagna í heimi þar sem öryggi, persónuvernd og sjálfbærni skipta máli í sívaxandi mæli. Styrkleikar Íslands og íslenskra gagnavera voru meðal áhersluatriða á málþingi Borealis Data Center á Hilton Reykjavík Nordica í gær, fimmtudaginn 31. ágúst, í tilefni samstarfsamnings fyrirtækisins við stórfyrirtækið IBM .

Björn Brynjúlfsson, forstjóri Borealis Data Center, og Dave Tropeano, Program Director hjá IBM Cloud Satellite, hófu málþingið. Umræðum var stýrt af Lilju Björk Guðmundsdóttur, viðskiptastjóra á iðnaðar- og hugverkasviði skýjaþjónustu, hjá Samtökum iðnaðarins.

Gagnaversiðnaðurinn á Íslandi hefur vaxið ört síðustu ár vegna ótvíræðra kosta sem fylgja staðsetningu gagnavera hér á landi og eru íslensk gagnver að verða sífellt eftirsóttari á alþjóðavísu. Nýlegur samningur Borealis Data Center og IBM Cloud var tilefni málþingsins, en samningurinn gerir viðskiptavinum fyrirtækjanna kleift að bjóða sínum viðskiptavinum aðgang að grænni skýjaþjónustu hér á landi. Þetta gerir aðilum sem vinna með viðkvæm gögn meðal annars kleift að tryggja að gögnin séu ávallt hýst á Íslandi.

„Við erum stolt að geta nú boðið upp á IBM Cloud á Íslandi. Aðstæður hér eru sérstaklega hentugar fyrir örugga og sjálfbæra gagnaversþjónustu, þökk sé meðal annars endurnýjanlegum orkugjöfum og hagstæðs veðurfars. Borealis er nú í enn betri stöðu til að þjónusta innlenda og erlenda viðskiptavini með áreiðanlegum hætti,“ sagði Björn Brynjúlfsson, forstjóri Borealis Data Center við gesti málþingsins.

Dave Trepeano, Program Director hjá IBM Cloud Satellite ræddi samstarfið við Borealis, en IBM leitar stöðugt við að bera kennsl á samstarfsaðila sem vinna eftir sömu gildum fyrirtækið hefur sjálft sett sér. Þá treystir IBM að Borealis sé aðili með sömu áherslu á öryggi og sjálfbærni sem IBM og viðskiptavinahópur þeirra leggi áherslu á.

Tækifæri felast í innleiðingu sjálfbærnireglugerða

Alma Tryggjadóttir, sviðsstjóri áhætturáðgjafar hjá Deloitte og Gunnar Sveinn Magnússon, meðeigandi og yfirmaður sjálfbærni og loftslagsmála hjá Deloitte, ræddu áhættuþætti, tækifæri og áskoranir sem nauðsynlegt er að fyrirtæki hugi að þegar kemur að gagnahýsingu.

Fyrirtæki sem uppfylla reglugerðir um sjálfbærni og persónuvernd draga úr áhættu sinni, byggja upp traust á fyrirtækinu, og auka skilvirkni og samkeppnishæfni sína. Þó reglugerðarumhverfið geti verið þunglamalegt eru verðmæti í því fyrir fyrirtæki að korleggja virðiskeðju og hagaðila sína, og áhrif reksturs síns á samfélag og umhverfi. Þegar kemur að gagnahýsingu eru fyrirtæki í dag í auknum mæli að horfa til gagnavera sem geta mætt vaxandi kröfum um sjálfbæran og öruggan rekstur.

Það skiptir máli hvar fyrirtæki geyma gögnin sín

Halldór Már Sæmundsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Borealis Data Center, leiddi því næst pallborð um sjálfbæra gagnageymslu og möguleika íslenskra gagnavera í þeim efnum. Í pallborðinu sátu Jóhanna Hlín Auðunsdóttir, forstöðumaður deildar loftslags og grænna lausna hjá Landsvirkjun, Björn Brynjúlfsson, forstjóri Borealis, Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri Farice og Dave Tropeano, Program Director hjá IBM Cloud Satellite.

Flest geyma gögnin sín á fleiri en einum stað, og fylgir það öryggis- og áhættumati hvernig og hvar gögn eru hýst. Ísland er tilvalinn staður fyrir gagnaver og íslensk gagnaver geta í ljósi hagkvæms orkuverðs og umhverfis- og öryggissjónarmiða verið eftirsóknarverð fyrir fyrirtæki til að geyma öryggisafrit af gögnum sínum.

Samkeppnisforskot íslenskra gagnavera felst þá helst í endurnýjanlegri orku, og samkvæmt nýrri skýrslu Landsvirkjunar er kolefnisspor á orkueiningu aðeins 0,38g CO2 ígildi á kílówattstund sem er með því minnsta sem þekkist í orkuvinnslu í heiminum. Til samanburðar er 100g viðmið ESB um hvenær raforkuvinnsla teljist sem mótvægisaðgerð gegn loftlagsbreytingum.

Þekking á gagnaverum og mikilvægi öruggrar gagnahýsingar vaxandi

Seinna pallborð málstofunnar var leitt af Nönnu Elísu Jakobsdóttur, viðskiptastjóra á iðnaðar- og hugverkasviði hjá Samtökum iðnaðarins þar sem mikilvægi þess að fyrirtæki fari eftir reglugerðum þegar kemur að hýsingu og geymslu gagna voru til umræðu. Í pallborðinu sátu Kristján Hafsteinsson, framkvæmdastjóri Responsible Compute, Camilla Kampmann, hugbúnaðarstjóri IBM, Elfur Logadóttir, framkvæmdastjóri ERA, og Svavar G. Svavarsson, öryggis- og persónuverndarstjóri Össurs.

Nú eru fyrirtæki að sjá tækifæri í því að skipta hýsingu gagna sinna upp eftir eðli og horfa í meiri mæli til skýjalausna á Íslandi fyrir hluta gagna sinna. Þegar kemur að skýjalausnum er gríðarlega mikilvægt að gögn séu meðhöndluð í samræmi við ríkjandi persónuverndar- og öryggisreglugerðir. Þá eru fyrirtæki jafnframt í meira mæli að sjá viðskiptaleg tækifæri í því að uppfylla slíkar kröfur og auka þannig skilvirkni, rekstrarhagkvæmni og umhverfisfótspor sitt.

„Hjá Borealis tökum við eftir vaxandi áhuga á starfsemi gagnavera og það er mikil aðsókn í skýjaþjónustu, bæði frá innlendum aðilum en líka erlendum. Ásamt því að laða erlenda viðskiptavini til landsins veitir samningur okkar við IBM íslenskum aðilum sem eru að meðhöndla viðkvæm gögn tækifæri til að nýta sér skýjaþjónustu og á sama tíma tryggja að gögnin séu á Íslandi,“ sagði Halldór Már Sæmundsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Borealis Data Center, í tilefni af málþinginu.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir