Ætlaði að gerast grænkeri og lifa á bjúgaldinum

Sagt er að Bjúgnakrækir sé fimur við að klifra og sat hann gjarnan upp í rjáfri eldhúsa hér áður fyrr og graðkaði í sig bjúgu. Í dag er hann vansæll því fá eru bjúgun í eldhúsum Íslendinga en einu sinni hugðist hann gerast grænkeri og snúa sér alfarið að bjúgaldinum. Það stóð samt ekki lengi því hann náði að hnupla góðri kippu af úrvalsbjúgum úr reykhúsi í Blönduhlíðinni og nokkru síðar í Blöndudalnum. Þá tók hann gleði sína á ný og söng hástöfum Tvíhöfða jólalag.
Níundi var Bjúgnakrækir,
brögðóttur og snar.
Hann hentist upp í rjáfrin
og hnuplaði þar.
Á eldhúsbita sat hann
í sóti og reyk
og át þar hangið bjúga,
sem engan sveik.
Á heimasíðu Jólamjólkur er hægt að finna góðar uppskriftir m.a. bragðmiklar hasselback kartöflur með osti og bökuðum rauðlauk, sem er í uppáhaldi hjá Bjúgnakræki. Sjá HÉR.