„Ef allir róa í sömu átt gerast stórir hlutir“

Jón Stefán Jónsson hefur gert góða hluti hjá Tindastóli allt frá því hann kom fyrst að félaginu 2013 sem þjálfari meistaraflokks karla. Mynd: ÓAB.
Jón Stefán Jónsson hefur gert góða hluti hjá Tindastóli allt frá því hann kom fyrst að félaginu 2013 sem þjálfari meistaraflokks karla. Mynd: ÓAB.

Jón Stefán Jónsson, sem starfað hefur sem framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar undanfarin misseri og verið annar þjálfari meistaraflokks kvenna, hefur látið af störfum fyrir félagið. Óhætt má segja að aðkoma Jónsa að félaginu hafi verið því heilladrjúg þau ár sem hann hefur verið á Króknum en árið 2013 var hann ráðinn þjálfari m.fl. karla og síðar framkvæmdastjóri meðfram þjálfun kvennaliðsins. En nú er komið að tímamótum og segir Jónsi í færslu á FB-síðu stuðningsmanna skilja liðið eftir í góðum höndum Guðna Þórs Einarssonar, samþjálfara síns.

Feykir hafði samband við Jónsa og lagði fyrir hann nokkrar spurningar. Sú fyrsta snýr að því hvernig tíminn í Skagafirðinum hafi farið með hann.
„Tíminn hefur verið umfram allt ánægjulegur og mjög lærdómsríkur. Ég myndi vera að ljúga ef ég segði að þetta hefði alltaf verið auðvelt. Það hafa komið upp ótrúleg mál á þessum tíma mínum hér, mál sem er full langt að fara að tyggja hér. En þeim er allavega lokið og fyrir mér stendur eftir öflug knattspyrnudeild með verulega spennandi framtíð fyrir höndum.“

Þeim góða árangri sem kvennaliðið náði í sumar vill hann þakka þeim sjálfum fyrst og fremst. „Þær voru tilbúnar fyrir tveimur árum að setja markmiðið hærra og leggja meira á sig, það er jú lykillinn að öllum árangri. Við ákváðum strax þá að temja okkur hugarfar og ákveðna hóps-menningu sem myndi sæma úrvalsdeildarliði. Þær nálguðust þá hugsun mjög vel flestar, en það má alltaf bæta við. Agi, samstaða og góð æfingamenning er forsenda alls árangurs ásamt því að vera tilbúin að setja þetta áhugamál í fyrsta sæti, á undan skemmtanalífi og því miður oft fjölskyldu.“

Það er alltaf ef og hefði
Spennan hjá toppliðunum í Innkasso-deildinni hélst allt til lokaumferðarinnar og þá sérstaklega milli Tindastóls og FH þar sem bæði lið áttu möguleika á því að fylgja Þrótti upp í efstu deild. Það fór svo að FH hafði það með tveimur stigum betur en Stólar. Þegar svo litlu munar að komast í deild hinna bestu, er líklega freistandi fyrir þjálfarann að spyrja, hvar gat liðið gert betur í sumar.

„Guð minn góður jú, ég hef staðið mig að því óþægilega oft að hugsa ef og hefði því þegar uppi var staðið munaði þetta jú bara þessum tíu mínútum á móti FH í Kaplakrika um mánaðarmótin júlí ágúst. Við vorum 4-1 yfir á móti þeim þegar 25 mínútur voru eftir. En það er svo sem endalaust hægt að telja og barma sér yfir þessu. Skulum ekki gleyma því að hin liðin geta hugsað eins, þannig er nú bara þessi bransi. Mér fannst við ekki nýta tækifærið í félagskiptaglugganum heldur til að styrkja liðið okkar með einum leikmanni og þori alveg að segja það fullum fetum að það voru mistök, sérstaklega miðað við þau meiðsli sem á liðið herjuðu. En á móti kemur þá fengu í staðin stelpur, sem örugglega fyrir stuttu létu sig ekki dreyma um að spila í Inkasso-deildinni, tækifæri til að láta ljós sitt skína, svo við skulum ekki gleyma því að fátt er svo með öllu illt að ekki hljótist eitthvað gott af. Ég ber virðingu fyrir þeim skoðunum eða ástæðum sem gefnar voru fyrir því að liðið var ekki styrkt og vil síður en svo að fólk pirri sig yfir þessu núna. Það er alltaf ef og hefði í þessu.“

Jónsi segist telja að ef Tindastól takist að halda sama leikmannahóp, eða svo gott sem, og bæti við einum til tveimur leikmönnum gætu þær slegist allhressilega um að láta úrvalsdeildardrauminn verða að veruleika. „Það er ekki alltaf sem félagið er svona stutt frá því og ég skora á þá sem að félaginu koma að láta slag standa og verða hluti af því sögulega afreki að koma Tindastól í efstu deild. Það væri þrekvirki sem seint væri leikið eftir með hóp sjö til níu heimakvenna í byrjunarliðinu í hverjum leik. Þær voru átta til níu í sumar og yrðu aldrei færri en sjö á næsta ári. Skulum ekki gleyma því heldur að stelpurnar eflast með hverjum vetrinum því liðið er kornungt, með enn betri umgjörð er líka hægt að efla liðið mikið innan frá og ég veit að stjórn og þjálfari eru stórhuga í þeim málum, sem gleður mig mikið.“

Sögur hafa heyrst um að Jónsi hafi hætt hjá Tindastóli til að taka við kvennaliði Þórs/KA af Donna, Halldóri Sigurðssyni, sem lét af störfum eftir tímabilið. Hann tekur lítt undir það og segist ekki vita til þess að það standi til. „Ég mun vissulega skoða mín mál sem þjálfari hér í Eyjafirðinum en ástæða þess að ég hætti hjá Tindastól er fyrst og fremst sú að ég er í nýrri vinnu sem Íþróttafulltrúi hjá Þór á Akureyri og sú vinna einfaldlega krefst þess að ég sé meir inn á Akureyri. Ég hef líka verið á svoddan flakki í fjögur ár og ákvað að þrátt fyrir að hafa alltaf góðan stuðning fjölskyldunnar þá færu þau í fyrsta sæti núna. Einnig fannst mér fjarvera mín í sumar ekki nógu gott mál fyrir liðið og kominn tími til að Guðni og stelpurnar fengju mann eða konu í teymið sem væri alltaf á staðnum en eins og margir vita var ég mikið fjarverandi í sumar.“

Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri?
„Ég vil bara þakka kærlega fyrir minn tíma hjá Tindastól og þá sérstaklega mínum kæra vin og meðþjálfara, Guðna Þór Einarssyni, sem er gullmoli fyrir félagið að eiga. Ég vil nota þetta tækifæri líka til að hrósa ykkur á Feyki fyrir frábæra umfjöllun um liðin okkar og félagið sjálft. Umfjöllunin er akkúrat eins og hún á að vera, jákvæð en gagnrýnin þegar það þarf, ykkar framlag er ofboðslega mikilvægt.

Að lokum til allra Tindastólsmanna, það væri ekkert gaman ef allir væru sammála en ef allir róa í sömu átt gerast stórir hlutir. Standið þétt við bakið á stjórn knattspyrnudeildarinnar og nýlega stofnuðu unglingaráði, þetta er frábært fólk sem hefur unnið þrekvirki við virkilega erfiðar aðstæður. Framtíðin er verulega björt á Króknum með þann efnivið og aðstöðu sem nú er fyrir hendi. Takk fyrir mig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir