Elín heiðruð fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi

Elín S. Sigurðardóttir forstöðumaður Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi tekur við viðurkenningunni. MYND AF HÚNI.IS
Elín S. Sigurðardóttir forstöðumaður Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi tekur við viðurkenningunni. MYND AF HÚNI.IS

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi fór fram á Norðurhjarasvæðinu þann 15. október en þar komu ferðaþjónustuaðilar saman, kynntu starfsemi sína og fögnuðu árangri liðins árs. Á hátíðinni voru veittar viðurkenningar í þremur flokkum. Elín S. Sigurðardóttur, forstöðumaður Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi, var á meðal þeirra sem fékk verðskuldaða viðurkenningu fyrir góð störf.

Elín hefur veitt Heimilisiðnaðarsafninu forstöðu frá árinu 1993 og gegnt lykilhlutverki í að byggja upp þá menningarstofnun sem safnið er í dag. Safnið er einstakt á landsvísu og sinnir fjölbreyttu hlutverki í sýningahaldi, rannsóknum, fræðslu og miðlun menningararfs sem tengist heimilisiðnaði og daglegu lífi fyrri tíma.

Á hverju ári heimsækja um 4.000 gestir safnið, bæði innlendir og erlendir ferðamenn, og hefur Elín lagt metnað í að tryggja fagleg vinnubrögð, öflugt samstarf við önnur söfn og virka þátttöku í þróun ferðaþjónustu á Norðurlandi. Markaðsstofa Norðurlands segir Elínu eiga „óumdeilanlega stærstan þátt“ í að safnið hafi fest sig í sessi sem áhugaverður og menningarlega mikilvægur viðkomustaður.

Arctic Sea Tours og Fræðasetur um forystufé einnig heiðruð

Auk Elínar hlutu tvö verkefni viðurkenningar á hátíðinni. Arctic Sea Tours á Dalvík var valið Fyrirtæki ársins fyrir stöðuga uppbyggingu, nýsköpun og metnaðarfulla þróun hvalaskoðunarferða allt árið. Fyrirtækið hefur eflt vetrarferðaþjónustu á svæðinu og verið leiðandi í öryggis- og gæðamálum.

Hvatningarverðlaunin hlutu Daníel Hansen og Fræðasetur um forystufé á Svalbarði í Þistilfirði, sem hefur skapað einstaka upplifun þar sem saga, búskaparhefð og menning fléttast saman.

Heimild: Húnahornið

Fleiri fréttir