Farga í Varmahlíð opnuð í gær

Loftmynd af Förgu, nýju sorpmóttökustöðinni í Varmahlíð. Mynd: Skagafjörður.is.
Loftmynd af Förgu, nýju sorpmóttökustöðinni í Varmahlíð. Mynd: Skagafjörður.is.

Ný sorpmóttökustöð var opnuð í Varmahlíð í fallegu vetrarveðri í gær en það eru sveitarfélögin í Skagafirði sem standa að opnun hennar. Nafnið Farga varð hlutskarpast í kosningu íbúa og ber því það nafn í framtíðinni. Framkvæmdir hófust í byrjun sumars og segir á heimasíðu Svf. Skagafjarðar að um mikið framfaraskref sé að ræða í flokkun sorps í dreifbýli Skagafjarðar.

„Með því að auka flokkun og endurvinnslu og draga úr urðun eins og lagt er upp með í þessari nýju og glæsilegu móttökustöð, þá standa vonir okkar til þess að nýjar leiðir verði ekki aðeins betri fyrir umhverfið, heldur einnig fyrir íbúana. Stefnumörkun stjórnvalda hér heima og erlendis er sú að notendur standi undir kostnaði við förgun þess úrgangs sem þeir bera ábyrgð á. Það er því allra ávinningur að flokka og minnka magn þess úrgangs sem fer í urðun og draga þannig úr kostnaði og spara auðlindir, umhverfinu og íbúum til hagsbóta,“ sagði Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri við opnunina.

Inga Huld afhendir Sigríði Stefánsdóttur blómvönd. Mynd: Skagafjordur.is.

Inga Huld afhendir Sigríði Stefánsdóttur blómvönd. Mynd: Skagafjordur.is.

Leitað var til íbúa Skagafjarðar um nafn á móttökustöðina og bárust 62 tillögur en fram kemur á skagafjordur.is að kosið hafi verið um fimm álitlegustu nöfnin að mati umhverfis- og samgöngunefndar og bárust yfir 700 atkvæði í kosningunni. Það var Sigríður Stefánsdóttir frá Víðimýri sem sendi inn tillögu að nafninu og fékk að launum blómvönd sem Ingibjörg Huld Þórðardóttir, formaður umhverfis- og samgöngunefndar, færði henni um leið og nafnið var opinberað við opnun Förgu.

Á opnunartíma Förgu móttökustöðvar munu starfsmenn leiðbeina og aðstoða íbúa við flokkun sorps á stöðvunum. Einnig verður aðgengi að afmörkuðum gám utan opnunartíma en til að byrja með verður eingöngu hægt að afsetja heimilissorp þar.

Sjá nánar HÉR

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir