Húnaþing vestra óskar eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga
Húnaþing vestra óskar nú eftir tilnefningum til umhverfisviðurkenninga.
Til stendur að veita umhverfisviðurkenningar í eftirfarandi flokkum :
- Umhverfi og aðkoma sveitabæja/fyrirtækjalóða.
- Umhverfi og garðar einkalóða/sumarbústaðalóða.
Hér með er skorað á þá sem vita af görðum eða svæðum sem eiga slíka viðurkenningu skilið að senda inn tilnefningar á eyðublaði sem finna má HÉR
Tekið er við tilnefningum til 31. ágúst nk.