Ísrael Martin Concepción aftur í Síkið

Ísrael Martin  Concepción á leið í Síkið á ný.
Ísrael Martin Concepción á leið í Síkið á ný.

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur komist að samkomulagi við Ísrael Martin  Concepción um að hann komi aftur til félagsins og taki við stöðu framkvæmdastjóra körfuknattleiksdeildarinnar. Martin sem áður hefur verið innan raða félagsins mun koma að daglegum rekstri þess.

Auk framkvæmdastjórnunar mun Martin sjá um þjálfun hjá u-20 kvenna sem og að taka að sér  stöðu aðstoðarþjálfara hjá meistaraflokki karla. Stefán Jónsson formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir félagið lýsa yfir mikilli ánægju og gleði með að vera komið með Martin aftur til starfa innan sinna vébanda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir