Katta- og hundaeigendur beðnir að hafa gát á dýrum sínum

Þó kötturinn sé alla jafna hin rólegasta skepna getur hann verið hin mesta veiðikló.
Þó kötturinn sé alla jafna hin rólegasta skepna getur hann verið hin mesta veiðikló.

Sveitarfélagið Skagafjörður vekur athygli á því á vef sínum að varptími fugla er hafinn og eru hunda- og kattaeigendur beðnir að taka tillit til þess. Kattaeigendur eru beðnir að halda köttum sínum innandyra á nóttunni og hengja bjöllur á hálsólar þeirra. Kettir eru öflug dýr og geta þeir haft neikvæð áhrif á stofn fugla sem verpa í nágrenni við mannabústaði ár hvert og því er mikilvægt að kattaeigendur fylgist með köttum sínum yfir varptíma fugla og á meðan ungar eru að verða fleygir. Einnig eru hundaeigendur beðnir um að sleppa ekki hundum sínum lausum á varpsvæðum.

Á Visindavefnum er fjallað um veiðieðli katta sem ekki hefur verið ræktað úr þeim þrátt fyrir að þeir hafi verið haldnir sem húsdýr öldum saman. Þar segir að líklega sé hin sterka veiðihvöt kattarins ástæða þess að menn tóku að halda ketti fyrir árþúsundum og hafi þeir gegnt stóru hlutverki í korngeymslum og hlöðum við að halda nagdýrum í skefjum. Þrátt fyrir að kettir séu í flestum tilfellum haldnir sem gæludýr haldi þeir rándýrseðli sínu og þótt þeir séu saddir og sælir komi það ekki í veg fyrir að þeir haldi til veiða, eðlið sé það sterkt. 

Áhugasömum er bent á að kynna sér samþykkt um hunda- og kattahald í Sveitarfélaginu Skagafirði sem finna má hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir