Kvennamót GSS 2020

Þátttakendur á Kvennamóti GSS. AÐSEND MYND.
Þátttakendur á Kvennamóti GSS. AÐSEND MYND.

Kvennamót GSS fór fram í sólinni á Hlíðarendavelli laugardaginn 4. júlí, sautjánda árið í röð.  Kylfingar glímdu við vind úr ýmsum áttum en skarðagolan var þó áberandi. Völlurinn skartaði sínu fegursta, blómum skreyttur og snyrtilegur í alla staði. Um 50 konur, víðs vegar að, mættu til leiks og heppnaðist mótið vel.  Sigurvegari í ár var Dagbjört Rós Hermundóttir GSS, en nánari úrslit má nálgast á golf.is.

Konur í klúbbnum hjálpast að við undirbúning og utanumhald mótsins en mótið er styrkt af fjölda fyrirtækja í Skagafirði og víðar. Að vanda svignaði verðlaunaborðið undan glæsilegum verðlaunum og er styrktaraðilum færðar hjartans þakkir fyrir stuðninginn.

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir