Lionsklúbbur Sauðárkróks gefur HSN Sauðárkróki veglegar gjafir | Aðsend grein

Lyonsmenn og Sjúkrahúsfólk. Mynd: hmj.
Lyonsmenn og Sjúkrahúsfólk. Mynd: hmj.

Mánudaginn 13. apríl mættu nokkrir Lionsmenn á Króknum á HSN Sauðárkróki og færðu stofnuninni glaðloftstæki af fullkomnustu gerð að gjöf. Fyrr í vetur voru Lionsmenn búnir að gefa endurhæfingunni nýtt hlaupabretti. Samtals kostuðu þessar gjafir 2.360.000 kr. Eyjólfur formaður klúbbsins sagði við afhendinguna að það væri ósk félaga í klúbbnum að þessar gjafir væru nýttar sem best. Hlaupabrettið nýtist öllum sem þurfa á endurhæfingu að halda og glaðloftstækið er hugsað fyrir fólk sem er kvíðið fyrir smærri læknisfræðilegum inngripum s.s bólusetningum, meðferð skurðsára o.fl. Við tækifærið þakkaði Eyjólfur formaður öllum þeim fyrirtækjum og stofnunum sem fengið höfðu Lionsmenn til að mála fyrir sig bílstæðalínur. Án stuðnings þessara fyrirtækja væri okkur ekki kleift að gefa gjafir sem þessar.

Sigurbjörg Ólafsdóttir yfirlæknir, Kristrún Snjólfsdóttir yfirhjúkrunarfræðingur og Fanney Ísfold Karlsdóttir yfirsjúkraþjálfari tóku á móti gjöfunum. Sigurbjörg þakkaði kærlega fyrir þessar góðu gjafir. Sagði jafnframt að þær kæmu örugglega að góðum notum hjá stofnuninni. Fanney sjúkraþjálfari sagði að hlaupabrettið væri sérhannað fyrir sjúkraþjálfun. Það væri mjög hentugt, mjúkt að ganga á því og einfalt í notkun.

Félagar í Lionsklúbbi Sauðárkróks hvetur alla þá sem vilja leggja samfélaginu lið með okkur að kynna sér starfsemi klúbbsins.

f.h. Lionsklúbbs Sauðárkróks,
Eyjólfur Sigurðsson, formaður
Alfreð Guðmundsson, ritari
Sigurbjörn Bogason, gjaldkeri

Fleiri fréttir