Margt smátt | Sigurður Líndal Þórisson skrifar

Sigurður Líndal Þórisson. MYND AÐSEND
Sigurður Líndal Þórisson. MYND AÐSEND

Margt smátt gerir eitt stórt. Þetta lærðum við flest þegar við eignuðumst fyrsta sparibaukinn. Ríkisstjórnin hefur lært þessi einföldu sannindi líka, og beitir þeim af hörku gegn heimilum landsins.

Hækkanirnar og skerðingarnar sem skella á fólki árið 2027 virðast smávægilegar hver fyrir sig. Í frumvarpinu fer kílómetragjaldið úr 6,95 krónum í 8,05 á hvern ekinn kílómetra, krónutölugjöldin hækka um 5,2% og barnabætur standa í stað þriðja árið í röð. Skattleysismörkin fá enga raunhækkun og vaxtabæturnar falla niður. Króna hér, nokkur þúsund þar. Klink og smáræði. En þetta tínist til.

Framsókn hefur opnað vefinn utreikningur.is, þar sem allt þetta klink og krónuklór er lagt saman. Tökum dæmi af hjónum á landsbyggðinni með tvö börn, 50 milljóna króna húsnæðislán og 35 þúsund ekna kílómetra á ári. Reiknivélin metur þennan reikning þeirra árið 2027 á um 281 þúsund krónur, rúmar 23 þúsund á mánuði. Þar af bætast um 102 þúsund við höfuðstól lánsins í formi verðbóta. Sömu hjón í Reykjavík, með sömu laun og sama lán, en aka minna, fá um 269 þúsund króna reikning. Munurinn liggur allur á vegum úti. Vegum sem ekki er búið að laga, þó nóg sé búið að finna upp af gjöldum til þess arna.

Grundvallarstefnuskrá Framsóknar telur það sjálfsagðan rétt fólks að geta valið sér búsetu, og nefnir greiðar samgöngur meðal þess sem jafnar búsetuskilyrði. Gjald sem hækkar með hverjum kílómetra vinnur gegn þeim jöfnuði. Hér fyrir norðan er langt í vinnuna, í skólann og til læknis, hver kílómetri telur.

Heimilissátt Framsóknar leggur til að krónutölugjöld, kílómetragjald og gjaldskrár ríkisstofnana hækki ekki umfram 2,5%. Með tillögum Framsóknar, ofan á boðaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar, færi reikningur hjónanna á landsbyggðinni niður í um 95 þúsund krónur. Fjárlögin eru vissulega reiknuð í milljörðum, en þau eru borguð í auðskiljanlegum upphæðum, af fólki sem munar um krónurnar.

Margt smátt gerir eitt stórt, og það gildir líka um hófsemi og nærgætni. Þegar ríki, sveitarfélög og atvinnulíf róa í sömu átt, skapast skilyrði til að ná niður verðbólgu og vöxtum. Við náum bestum árangri fyrir fólkið í landinu með samvinnu ólíkra afla á grundvelli hófsemi og heiðarleika. Sú leið hefur sjaldan verið brýnni en nú.

Höfundur er oddviti sveitarstjórnar Húnaþings vestra.

Fleiri fréttir